156. löggjafarþing — 57. fundur,  10. júní 2025.

sviðslistir.

160. mál
[21:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sviðslistir, nr. 165/2019. Með frumvarpinu er lagt til að stofnuð verði ópera sem starfi sem hluti af Þjóðleikhúsinu og gert er ráð fyrir að hafi aðsetur í Hörpu. Með þessum breytingum fengi óperan sambærilega stöðu að lögum og aðrar kjarnastofnanir sviðslista, þ.e. líkt og Þjóðleikhúsið í leiklist og Íslenski dansflokkurinn í dansi.

Markmið frumvarpsins er að efla óperulist á Íslandi og tryggja henni samfelldan og stöðugan grundvöll sem grunnstoð í íslensku samfélagi. Áhersla er lögð á að óperan verði aðgengileg almenningi óháð búsetu og efnahag, að verkefnaval hennar verði fjölbreytt og að stefnt verði að nýsköpun og framþróun í óperulist. Þá er gert ráð fyrir að óperunni verði falið lögbundið fræðslu- og kynningarhlutverk um land allt.

Í frumvarpinu er einnig lögð áhersla á samnýtingu fag- og stoðdeilda Þjóðleikhússins og náið samstarf við aðrar sviðslistastofnanir. Með því er stefnt að eflingu óperulistarinnar ásamt því að ná fram hagræðingu í rekstri og einföldun í stjórnsýslu. Loks er mikilvægur þáttur frumvarpsins að skapa söngvurum og öðru sviðslistafólki traustan starfsgrundvöll hér á landi.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund fjölda gesta og bárust einnig umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega að nefndin fjallaði um listrænt sjálfstæði óperunnar. Við meðferð málsins fyrir nefndinni var fjallað um listrænt sjálfstæði óperunnar og stjórnanda hennar bæði innan Þjóðleikhússins og gagnvart ráðherra. Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að óperan njóti listræns sjálfstæðis gagnvart ríkinu og að efnisval hennar sé óháð pólitískum afskiptum. Meiri hlutinn bendir á að ekkert í frumvarpinu leiði til þess að ráðherra fái meira vald yfir óperunni en hann hefur nú yfir öðrum listastofnunum og telur ekkert í frumvarpinu leiða til hættu á listrænum afskiptum ráðherra af starfsemi óperunnar.

Í þessu sambandi vill meiri hlutinn einnig árétta að Ísland er lýðræðisríki þar sem tjáningarfrelsi er almennt virt. Þá er það ítrekað að reglugerðarheimild frumvarpsins nær ekki til þess að færa ráðherra vald yfir óperunni, þvert á móti er henni ætlað að skýra sjálfstæði óperunnar gagnvart Þjóðleikhúsinu. Meiri hlutinn vill einnig leggja áherslu á í þessu samhengi að reglugerð getur aldrei gengið lengra en þau lög sem hún byggir á.

Varðandi möguleg óbein áhrif ráðherra í gegnum skipun óperustjóra bendir meiri hlutinn á að sú skipun byggist á tillögu sjálfstæðrar hæfnisnefndar og er vald ráðherra því ekki ótakmarkað í þessum efnum.

Með vísan til alls framangreinds telur meiri hlutinn ekki tilefni til að telja það fyrirkomulag sem frumvarpið mælir fyrir um sé varhugavert þegar kemur að listrænu sjálfstæði óperunnar gagnvart ráðherra eða stjórnvöldum að öðru leyti.

Nefndin fjallaði einnig um sjálfstæði óperunnar og óperustjóra gagnvart þjóðleikhússtjóra, einkum í ljósi þess að óperustjóri mun heyra undir hann í skipuriti og eiga með honum samráð um gerð fjárhagsáætlana og meiri háttar ákvarðanir sem varða rekstur óperunnar. Ljóst er að frumvarpið gerir ráð fyrir samstarfi og samvinnu milli þjóðleikhússtjóra og óperustjóra um ýmis mál, svo sem um starfsáætlanir, fjárhagsramma og samnýtingu þeirra deilda sem nú þegar eru innan Þjóðleikhússins. Meiri hlutinn bendir hins vegar á að frumvarpið felur í sér ýmis ákvæði sem miða sérstaklega að því að tryggja sjálfstæði óperunnar í þessu samstarfi. Þar má nefna að óperustjóri verður skipaður af ráðherra á grundvelli tilnefningar hæfnisnefndar og skýrt er kveðið á um að hann fari með stjórn óperunnar og beri ábyrgð á listrænni stefnu hennar. Óperan fær jafnframt sérstakt framlag í fjárlögum, auk þess sem henni er heimilt að afla eigin tekna og taka aðgangseyri. Þá ber óperustjóri ábyrgð á rekstri og fjárhag óperunnar, ræður starfsfólk hennar, skipar listrænt teymi fyrir uppfærslur og hefur forræði á verkefnavali. Með þessu fyrirkomulagi er markmiðið að tryggja óperunni bæði faglegt og fjárhagslegt sjálfstæði, þrátt fyrir að hún starfi innan vébanda Þjóðleikhússins.

Í samræmi við framangreint telur meiri hlutinn að frumvarpið tryggi sjálfstæði óperunnar gagnvart þjóðleikhússtjóra eins og frekast er unnt. Gert er ráð fyrir að óperan njóti víðtæks sjálfstæðis og að óperustjóri leiði með sjálfstæðum hætti þann hluta starfseminnar sem lýtur að óperunni. Jafnframt bendir meiri hlutinn á að reglugerð veitir svigrúm til að skilgreina verkaskiptingu og samrekstur nánar. Þá ítrekar meiri hlutinn að það fyrirkomulag sem frumvarpið mælir fyrir um er liður í stærri framtíðarsýn um að sviðslistastofnanir starfi undir sameiginlegri yfirstjórn þar sem hver listgrein hefur sinn sjálfstæða listræna stjórnanda. Hvað varðar sjálfstæði óperunnar gagnvart Þjóðleikhúsráði telur meiri hlutinn skýrt af frumvarpinu að hlutverk ráðsins sé ekki að hafa listræn afskipti af óperunni heldur að hafa eftirlit með rekstri hennar og hefur meiri hlutinn því ekki áhyggjur af þessu fyrirkomulagi. Auk þess er gert ráð fyrir að tveir fulltrúar bætist í Þjóðleikhúsráð frá vettvangi óperunnar, sem að mati meiri hlutans styrkir enn frekar sjálfstæði hennar.

Þá fjallaði nefndin um starfsöryggi en verði frumvarpið að lögum verður til starfsgrundvöllur fyrir fjölda söngvara og sviðslistafólks, með stöðugildum fyrir bæði einsöngvara og kórsöngvara, en til langs tíma er stefnt að því að óperan ráði yfir allt að 12 stöðugildum fyrir einsöngvara og 16 hálfum stöðugildum fyrir kór.

Í umsögnum og fyrir nefndinni kom fram mikil ánægja með þetta og tekið var fram að lengi hefði verið barist fyrir starfsöryggi í stéttinni. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að söngvurum stæði til boða stöðugt starfsumhverfi, m.a. til að sporna gegn stöðnun í söngmenntun hér á landi og til að koma í veg fyrir að söngmenntaðir hyrfu úr landi vegna skorts á möguleikum innan lands. Einnig var bent á að með frumvarpinu yrði söngvurum í fyrsta sinn tryggð sambærileg staða að lögum og öðrum listamönnum, svo sem leikurum og dönsurum, auk þess sem þetta hefði í för með sér möguleika á samfelldri óperustarfsemi í fyrsta sinn, sem væri afar mikilvægt framfaraskref. Meiri hlutinn fagnar sérstaklega þessum áhrifum frumvarpsins.

Nefndin fjallaði einnig um hagræn áhrif frumvarpsins Við meðferð málsins fyrir nefndinni var einnig fjallað um þau hagrænu áhrif sem stofnun óperu innan Þjóðleikhússins hefði í för með sér. Eins og fram hefur komið er frumvarpinu ætlað að efla óperulist á Íslandi með því að skapa henni tryggan lagalegan grundvöll og var ákveðið að reka óperuna sem hluta af Þjóðleikhúsinu í stað þess að stofna nýja ríkisstofnun. Þessu fyrirkomulagi er ætlað að stuðla að hagræðingu og samlegðaráhrifum með því að nýta þær fag- og stoðdeildir sem þegar eru til staðar innan Þjóðleikhússins. Meiri hlutinn tekur undir þetta markmið frumvarpsins og áréttar að með slíkri samnýtingu er komist hjá kostnaðarsamri uppbyggingu nýrra innviða og stoð- og fagdeilda frá grunni. Meiri hlutinn fagnar því fyrirkomulagi sem frumvarpið kveður á um og telur það skynsamlega og hagkvæma leið til að tryggja öfluga og samfellda óperustarfsemi hér á landi sem nær yfir nýsköpun og þróun listformsins, fræðslustarfsemi, samstarf við landsbyggðina og sjálfstæða hópa auk samvinnu við Listaháskóla Íslands.

Að mati meiri hlutans fellur frumvarpið vel að yfirlýstu markmiði ríkisstjórnarinnar um að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir þar sem það tryggir nýtingu núverandi innviða og dregur úr stofnkostnaði. Í því sambandi vísar meiri hlutinn sérstaklega til skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis frá desember 2021, um fjölda og stærð ríkisstofnana og tækifæri til stærðarhagkvæmni, þar sem m.a. var bent á tækifæri til hagræðingar hjá menningarstofnunum á sviði sviðslista.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þm. Grímur Grímsson, Ingibjörg Isaksen, Ingvar Þóroddsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Víðir Reynisson.

Frú forseti. Það er mikilvægt og ánægjulegt skref sem við erum að stíga hér í dag, skref í átt að aukinni fjölbreytni í listum og menningu. Á sama tíma langar mig að þakka öllu því forgöngufólki sem markað hefur leiðina að þessum punkti, stofnendur Íslensku óperunnar og öllum þeim sem hafa lagt á sig gríðarlega vinnu við að halda uppi merkjum óperunnar. Við treystum þeim sem nú taka við kyndlinum til að halda þessu vel á lofti.