Almennar stjórnmálaumræður.
Tekið er fyrir eina dagskrármálið, almennar stjórnmálaumræður, sem er útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í tvær umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.
Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Miðflokkurinn, Viðreisn, Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins.
Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tala Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurkjördæmis, í fyrri umferð og Jens Garðar Helgason, 3. þm. Norðausturkjördæmis, í seinni umferð.
Fyrir Samfylkinguna tala í fyrri umferð Guðmundur Ari Sigurjónsson, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þeirri seinni Arna Lára Jónsdóttir, 3. þm. Norðvesturkjördæmis.
Fyrir Miðflokkinn tala Sigríður Á. Andersen, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrri umferð og í þeirri seinni Ingibjörg Davíðsdóttir, 4. þm. Norðvesturkjördæmis.
Ræðumenn Viðreisnar eru Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, í fyrri umferð og í þeirri seinni Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Fyrir Framsóknarflokkinn tala Þórarinn Ingi Pétursson, 10. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð og Halla Hrund Logadóttir, 5. þm. Suðurkjördæmis, í þeirri seinni.
Ræðumenn Flokks fólksins eru Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Sigurjón Þórðarson, 4. þm. Norðausturkjördæmis, í seinni umferð.