Almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Eldhúsdagur er dagur lýðræðisins, dagur þar sem þjóðin lítur til þingsins í von um skýra sýn og heiðarlegt mat. Þetta er dagur sem minnir okkur á hvers vegna við erum hér; til að hlusta, leiða og tala skýrt um það sem mestu máli skiptir, framtíðina. Við búum í landi tækifæranna, landi þar sem náttúruauðlindir, menntun og dugnaður fólksins er grunnurinn að öflugri velferð. Ísland stendur framarlega á alla mælikvarða, öruggt, frjálst og sjálfstætt ríki. Það gerðist ekki af sjálfu sér en krafðist skýrrar forgangsröðunar, ábyrgðar í fjármálum og virðingar fyrir einstaklingnum.
Kæru landsmenn. Í efnahagsmálum blasir þó við ábyrgðarleysi. Ríkisstjórnin talar um aðhald en gerir annað. Hún lofar að draga úr útgjöldum en ætlar að binda fimmtung ríkisútgjalda við launavísitölu. Þannig verða tugmilljarða króna útgjöld sjálfvirk án nokkurrar aðkomu Alþingis. Þetta er ekki ábyrgt. Þetta er afsalað vald, með lokuðum augum, frá þjóðkjörnum fulltrúum til ófyrirsjáanlegrar launaþróunar. Á sama tíma hyggst ríkisstjórnin hækka skatta á undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar, skatta sem ekki byggja á raunverulegri afkomu heldur reiknaðri. Þetta er ekki aðeins ósanngjarnt, þetta er bein árás á samkeppnishæfni Íslands og þar með á framtíðarmöguleika ríkisins til tekjuöflunar.
Kæru landsmenn. Það hefur ekki allt orðið þjóð okkar til gæfu en líklega var eitt stærsta gæfuspor sem stigið hefur verið í íslensku samfélagi þegar launþegar og atvinnurekendur ákváðu að byggja upp sameiginlegt, sjálfstætt samtryggingarkerfi lífeyrisréttinda. Þetta kerfi er ekki eign ríkisins heldur fólksins sem hefur unnið, sparað, sýnt fyrirhyggju og ábyrgð. Það er fjárhagslegt öryggisnet og hornsteinn velferðar okkar og það á að umgangast af virðingu.
Ég sé ekki betur, virðulegi forseti, en að ríkisstjórnin ætli að berja niður verðbólguna með sleggju og nú ætlar hún að beita sömu sleggju á lífeyrissjóðina. Hér er ég að tala um hið stórhættulega frumvarp ríkisstjórnarinnar er varðar víxlverkun örorku. Þetta er ekki gæfuspor heldur atlaga að viðkvæmu jafnvægi og þetta hefur afleiðingar, afleiðingar fyrir réttindi lífeyrisþega, fyrir fjárfestingar lífeyrissjóðanna og fyrir getu þeirra til að styðja við atvinnulífið og þar með íslenskt samfélag. Hefur frumvarp hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra verið sagt fela hreinlega í sér eignaupptöku og það af fyrrverandi fjármála- og efnahagsráðherra og fyrrum formanni Viðreisnar, Benedikt Jóhannessyni. Þessi stefna bitnar sérstaklega á sjóðum láglaunastétta. Hún grefur undan því jafnræði sem velferðarkerfið á að byggja á. Því spyr ég: Hvernig getur það samræmst réttlæti að láta verkafólk axla kostnað örorku sem áður var á ábyrgð ríkisins? Við í Sjálfstæðisflokknum stöndum vörð um þessi gildi; réttlæti, sjálfsákvörðunarrétt og virðingu fyrir eignum þeirra sem hafa lagt sitt af mörkum.
Kæru landsmenn. Ríkisstjórnin hefur í orði kveðnu sett sér það markmið að ná tökum á ríkisfjármálum, stöðva hallarekstur og skapa rými fyrir vaxtalækkanir. En verkin tala öðru máli. Þrátt fyrir hástemmd orð hefur ríkisstjórnin í raun slakað á aðhaldi og það einmitt þegar þörfin er hvað brýnust fyrir það. Þetta þýðir að stuðningur við peningastefnuna dregst saman. Þess í stað sjáum við áframhaldandi verðbólguþrýsting og vaxtabyrði sem heldur heimilum og fyrirtækjum í heljargreipum. Þetta er bein afleiðing ábyrgðarleysis í opinberum fjármálum. Forsendur ríkisstjórnarinnar um rekstrarafgang eru því miður ekki trúverðugar. Það hefur hvorki verið kynnt hvernig útgjöld verða dregin saman né hvernig skuli forgangsraða. Í stað þess að kynna raunhæfar aðgerðir er boðuð enn meiri útgjaldaaukning, ekki síst með beintengingu bóta við launavísitölu sem við höfum nú þegar varað við. Það sem verra er; á sama tíma og ríkisstjórnin lýsir því yfir að tryggja eigi stöðugleika leggur hún til að töluleg viðmið um lækkun skulda verði felld úr lögum um opinber fjármál. Þannig á að leysa vanda ríkissjóðs með því að afnema mælikvarðana. Það er ekki fjármálastefna, virðulegi forseti, það er ábyrgðarleysi.
En það sem stendur upp úr er þetta: Vandi ríkisfjármála er ekki tekjuvandi, það er útgjaldavandi. Ísland er þegar með eitt umfangsmesta opinbera kerfi í heimi. Nú þarf raunverulega hagræðingu og forgangsröðun. Það er ekki val heldur nauðsyn ef við ætlum að standa vörð um traust opinber fjármál og jafnræði á milli kynslóða. Þegar afkomubati er sagður markmið en jafnframt lagt til að hækka skatta á grunnstoðir útflutnings, á sama tíma og alþjóðaviðskipti standa í upplausn, þá er ekki um stefnu að ræða heldur stefnuleysi.
Kæru landsmenn. Mér er ekki sama þegar framtíðaröryggi fólksins í landinu er sett í hættu. Ég fór í stjórnmál vegna þess að mér er ekki sama um fólkið, framtíðina og um landið sem við skiljum eftir fyrir börnin okkar. Ég er alin upp við gildi móður minnar um sparnað og ráðdeild. Þau gildi hafa fylgt mér í gegnum lífið og þau eru mér leiðarljós í pólitíkinni. Ég trúi því að ábyrg stjórn, byggð á festu og sjálfstæði, sé það sem tryggir velferð til framtíðar.
Það er ekki ríkisvaldið sem býr til verðmæti, það eru einstaklingarnir, fjölskyldurnar og fyrirtækin sem skapa það sem við byggjum á. Þess vegna segjum við í Sjálfstæðisflokknum: Hingað og ekki lengra. Það er ekki hlutverk ríkisins að vita alltaf best eða stýra hverju skrefi einstaklinganna. Hlutverk þess er að skapa trausta umgjörð, styðja við verðmætasköpun og draga sig í hlé þegar einstaklingurinn stendur styrkum fótum. Við verðum líka að horfast í augu við þá einföldu staðreynd að engin þjóð hefur orðið ríkari með því að skattleggja fólk umfram getu þess.
Kæru landsmenn. Við í Sjálfstæðisflokknum höfum lausnir, lausnir sem byggja á ábyrgð, umbótum og virðingu fyrir framtíðarkynslóðum. Við ætlum að tryggja sjálfbæran ríkisrekstur, ekki með síauknum álögum heldur með forgangsröðun. Við ætlum að verja lífeyriskerfið, við ætlum ekki að veikja það. Við trúum því að Ísland geti blómstrað. Við trúum á framtíðina og við trúum á fólkið í landinu. Við stöndum vaktina og við ætlum að standa hana áfram.