Almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Á þessum degi er það hlutverk okkar þingmanna að gera upp það sem er ófrágengið, að taka til í eldhúsinu eftir langan þingvetur. Og það er áhugavert að gera þennan þingvetur upp. Fyrir mér er hann vetur hinna skörpu skila. Skilin á milli stjórnar og stjórnarandstöðu hafa aldrei verið skýrari. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að vinna hratt og vel fyrir hagsmuni almennings. Að taka stöðu með almannahagsmunum gegn sérhagsmunum. Og við höfum sýnt það á örfáum mánuðum að það er hægt að standa við stóru orðin og ganga óhrædd til verka. Það er augljóst öllum að þjóðin kann að meta þetta verklag og skyldi engan undra eftir það sem á undan hefur gengið síðustu ár.
Með Viðreisn, Samfylkingu og Flokki fólksins fékk þjóðin ekki bara stjórnarmeirihluta sem segist vinna fyrir almenning heldur sýnir það í verki og á einungis fjórum mánuðum höfum við gert breytingar og ýtt úr vör málum í þágu almennings sem aðrir flokkar hafa ekki nýtt ár í að gera. Þar nægir að nefna að ríkisstjórnin hefur vandræðalaust selt hlut ríkisins í Íslandsbanka, klárað uppgjör ÍL-sjóðs og sýnt að það að reka ríkissjóð réttum megin við núllið er vel viðráðanlegt verkefni. Við munum hins vegar heyra það í ræðum minni hlutans hér í kvöld að þessi ríkisstjórn kunni ekki til verka, eins og að hér haldi á málum fólk sem hafi ekki réttu flokkspólitísku upprunavottorðin til þess, svona eins og að stólarnir hér fyrir aftan mig séu fengnir að láni frá einhverju útvöldu, pólitísku klani sem hafi einkarétt á öllum helstu valdastöðum í íslensku samfélagi. Þetta er auðvitað ekkert annað en firring, firring í bland við vandræðalegt, innihaldslaust yfirlæti.
Hvergi birtist þessi blinda minni hlutans með jafn skýrum hætti og í hatrammri andstöðunni gegn eðlilegri og sanngjarnri leiðréttingu veiðigjalda, leiðréttingu sem þjóðin skilur og veit að er löngu tímabær. Viðreisn hefur frá stofnun flokksins talað fyrir því að þjóðin fái sanngjarna hlutdeild í ágóðanum af nýtingu á því sem við eigum saman. Leiðrétting veiðigjalda er réttlætismál og frá henni mun Viðreisn ekki hvika. Frá henni mun ríkisstjórnin ekki hvika. Þjóðin getur treyst því. En það er óneitanlega sérstakt, svo ekki sé meira sagt, að fylgjast með pirruðum minni hlutanum hér á þingi opinbera að hans helsta erindi hér er að halda málum ríkisstjórnarinnar í gíslingu með innihaldslitlu málþófi til að ganga erinda auðstéttar landsins.
Góðir áheyrendur. Þjóðin getur treyst því að þessi ríkisstjórn mun standa vörð um sterkt og öflugt atvinnulíf um allt land. Það er hagur alls almennings. Öflugt atvinnulíf og alvöru ábyrg hagstjórn eru enda burðarstólpar stjórnarsamstarfsins. Þannig munum við koma íslensku efnahagslífi aftur á réttan kjöl. Þetta eru leiðarljós okkar og undir stjórn hæstv. fjármálaráðherra er sannarlega aftur farið að birta til. Það staðfesti seðlabankastjóri sem segir ríkisfjármálin á betri stað en hjá síðustu ríkisstjórn, m.a. vegna þess að núverandi stjórn sýnir meira aðhald og festu í ríkisfjármálum. Þetta gefur okkur nauðsynlegt tækifæri til að ýta undir öflugt atvinnulíf, verðmætasköpun og búsetu um allt land með því að efla vanrækta innviði á borð við samgöngur, enda þarf öfluga og sterka innviði til að tryggja öflugt og sterkt atvinnulíf. Vanræksla innviðanna er nefnilega hinn raunverulegi landsbyggðarskattur.
Kæru landsmenn. Það skiptir máli að þeir flokkar sem mynda stjórnarmeirihluta geti, þegar á hólminn er komið, unnið saman og hafi sameiginlega sýn á verkefnin. Það skiptir máli að ríkisstjórnin sé vinnusöm og hafi kjark til að vinna í þágu þjóðarinnar, í þágu fólksins sem krafðist þess í síðustu kosningum að hér á Alþingi yrðu tekin upp önnur og betri vinnubrögð. Við erum hér í umboði þeirra og við eigum að vinna fyrir þau.
Það er því sannarlega mikið verk að vinna hér innan lands, en lítið land eins og Ísland á líka mikið undir því hvernig mál þróast á alþjóðavettvangi. Víða í löndunum í kringum okkur eru vel skipulögð öfgaöfl að ráðast á sjálfar undirstöður lýðræðisins; frelsi, jafnrétti og mannréttindi. Þar þurfum við að skipa okkur í sveit með þeim sem standa vörð um þau gildi sem hafa verið grunnur að velmegun okkar og velgengni frá stofnun lýðveldisins árið 1944, þau gildi sem við höfum haldið í heiðri og gera að verkum að Ísland er meðal efstu landa á listum þar sem frelsi og viðurkenning á mannréttindum allra er mælt.
Á þeim umbrotatímum sem við lifum nú hefur Evrópusambandið staðið gegn andlýðræðislegum öflum og lagt áherslu á að sameina Evrópu í stað þess að ala á sundrungu. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er því lýst yfir að íslensk þjóð fái loks að segja hug sinn um það hvort sækja eigi um aðild að Evrópusambandinu. Þetta hefur verið eitt af grunnstefjum Viðreisnar enda teljum við að hagsmunum Íslands sé þar best borgið. Við viljum hins vegar að þjóðin fái að ákveða það sjálf og við það munum við standa.
Kæru áheyrendur. Á þessu kjörtímabili munu landsmenn finna á eigin skinni hvað það skiptir miklu máli að hér hafi verið mynduð ríkisstjórn flokka sem eru óháðir rótgrónum íslenskum sérhagsmunaöflum. Að hér sé haldið á málum þannig að hagsmunir almennings ráði alltaf för. Þessi breyting á eftir að reynast mikið heillaskref fyrir íslenska þjóð. Um það þarf enginn að efast. — Takk fyrir að hlusta og gleðilegt sumar.