Almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Honum hefur verið lýst sem eldheitum samvinnumanni. Hann trúði því statt og stöðugt að þjóðin næði mestum árangri þegar við stæðum saman og byggðum á þeim gildum sem sameina okkur sem heild. Samvinnuhugsjónin hefur alltaf verið leiðarljós okkar Íslendinga og nú þurfum við á henni að halda meira en nokkru sinni fyrr. Sannleikurinn er sá að Ísland hefur í aldanna rás verið ein heild þar sem við höfum unnið saman og þess vegna náð árangri sem þjóð. Þessu verðum við að halda áfram.
Ísland er meira en Reykjavík eða höfuðborgarsvæðið. Þrátt fyrir að Ísland sé fámennt land er það meira en tvisvar sinnum stærra að flatarmáli en Danmörk. Þetta er mikil áskorun. Samgöngur, innviðir og þjónusta hins opinbera um allt land er dýr. En þetta þýðir um leið að þvert á landshluta býr fólk sem skapar og leggur grunninn að verðmætasköpun þjóðarinnar, oft í hundrað kílómetra fjarlægð hvert frá öðru. Landið allt — allir með.
En hver er staðan í dag? Erum við öll í sama liði? Er meint verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur að sameina þjóðina? Stutta svarið er nei.
Í dag horfir ríkisstjórnin til þess að stórhækka gjaldtöku á grunnatvinnugreinar landsins algerlega án áhrifamats og greininga. Það eru viss jafnvægislist að ná fram tekjum án þess að draga úr verðmætasköpun því án auðlinda landsins og sjálfbærrar nýtingar þeirra í öllum landshlutum byggjum við ekki á þeirri hagsæld sem ríkt hefur á Íslandi frá lýðveldisstofnun. Við megum aldrei gleyma því að sjávarútvegurinn hefur skapað verðmæti sem allir Íslendingar njóta góðs af. Við getum deilt um umfang gjaldtöku og skattlagningar á atvinnuvegi en enginn getur deilt um þau verðmæti sem hafið í kringum landið veitir samfélaginu sem heild. Sama á við um landbúnaðinn okkar, matvælaframleiðslu, iðnaðinn, menninguna og síðast en ekki síst ferðaþjónustuna, sem nú nýtir nánast öll svæði landsins til verðmætasköpunar. Öll þessi svið hagkerfisins mynda eina heild, hagkerfi sem er eins sterkt og veikasti hlekkurinn og þessa hlekki þarf að styrkja.
Og í ljósi alþjóðamála hefur sjaldan verið mikilvægara að Ísland geti treyst á eigin framleiðslu þegar kemur að matvælum. Við þurfum því algerlega nýja hugsun í matvælaframleiðslu sem tryggir fæðuöryggi þjóðarinnar. Það að geta verið okkur sjálfum nóg, jafnvel þegar utanaðkomandi aðstæður eru erfiðar, er lykilatriði.
Styðja þarf markvisst við rannsóknir og þróun í matvælaframleiðslu með áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og umfram allt skilvirkni. Síðast en ekki síst þurfum við kerfislæga breytingu sem tryggir að ungt fólk hafi möguleika á að hefja búskap, kaupa jarðir, taka þátt í endurnýjun og þróun íslensks landbúnaðar.
Þess vegna hefur Framsókn mótað nýjar hugmyndir — Nýjar rætur — um að styðja við jarðakaup ungs fólks sem er tilbúið að sýna frumkvæði, taka áhættu og fjárfesta eigin tíma í að búa til verðmæti fyrir okkur öll. Og þegar við segjum: Landið allt — allir með, þá þýðir það að tryggja jafnt aðgengi að þjónustu um allt land. Öryggismál þjóðarinnar snúast ekki um höfuðborgarsvæðið. Heilbrigðisþjónusta, menntun og samgöngur eru ekki forréttindi fárra heldur réttindi allra Íslendinga hvar sem þeir búa.
Kæru landsmenn. Ég byrjaði ræðu mína á tilvísun til Jónasar frá Hriflu. Hans grunnstef í lífinu var menntun, samvinna og þjóðleg sjálfsvirðing. Og þegar við stöndum saman höfum við sannað hvað við getum afrekað. Við þurfum hvert á öðru að halda; fólk á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu, ungir og þeir sem eldri eru. Þrátt fyrir þær áskoranir sem bíða okkar getum við saman haldið áfram að byggja upp betra land á grunni samstöðu og samvinnu. Fyrir þau gildi stendur Framsókn. Landið allt — allir með. Góðar stundir.