Almennar stjórnmálaumræður.
Góðir landsmenn. Í velferðarsamfélögum eins og á Íslandi segir almenningur gjarnan að efnahagsmál séu mikilvægasta hagsmunamálið. Fólk hefur ekki þurft að hafa miklar áhyggjur af öryggi í sínu daglega lífi. En um leið og öryggi fólks er ógnað breytist þetta hagsmunamat. Þá verður skýrt að ekkert er mikilvægara en að búa við öryggi. Það hefur verið spegill á þetta öryggi á Íslandi að löggæsla og aðgerðir gegn glæpum hafa ekki verið framarlega á forgangslista stjórnvalda og ekki efstar í huga almennings heldur. En á skömmum tíma þá hefur landslagið breyst. Alvarlegum afbrotum, morðum og líkamsárásum, hefur fjölgað. Hnífaburður er orðinn útbreitt vandamál og ofbeldi gegn konum á Íslandi er viðvarandi vandamál.
Hjá öllum ábyrgum stjórnvöldum er öryggi fólks forgangsverkefni. Þessa ábyrgð þekkjum við Íslendingar hvað varðar náttúruvá, óveður, jarðhræringar og eldgos og auðvitað ekki síst hefur hafið umhverfis Ísland kennt okkur að fara með gát. Okkar ógnir hafa verið aðrar en glæpir.
Ég sat á dögunum fund með dómsmálaráðherrum Norðurlandanna og við ræddum um skipulagða brotastarfsemi og aðgerðir gegn ofbeldi. Skipulögð glæpastarfsemi hefur náð að festa rætur á Íslandi og á Norðurlöndunum sjáum við núna að skipulagðir glæpahópar eru farnir að nota ungmenni til að fremja afbrot. Gengjastríð eru orðin að veruleika og ráðamenn hafa miklar áhyggjur af stöðunni. Ég fékk brýningu frá norrænum kollegum mínum sem sögðu: Gerið eitthvað núna, ekki bíða. Það verða dýrkeypt mistök.
Á fyrstu sex mánuðum þessarar ríkisstjórnar höfum við eflt löggæslu, fjölgað lögreglumönnum og lágmarkssektir fyrir vopnaburð hafa verið tífaldaðar. Skilaboð kerfisins eru skýr: Vopnaburður verður ekki liðinn á Íslandi. Lög um farþegalista hafi verið samþykkt og ég er að endurskoða lög um nálgunarbann því að við samþykkjum ekki að konur þurfi að búa við ógn og hótanir ofbeldismanna. Í haust ætlar ríkisstjórnin að rýmka heimildir lögreglu til að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Aðgerðir eru í kortunum til að efla lögregluna á Suðurnesjum enn frekar. Þar vinnur sterkur hópur saman en með lagabreytingum ætlum við að efla embættið og landamærin enn frekar.
Kæru landsmenn. Íslenskt samfélag hefur breyst og það hefur breyst nokkuð hratt. Ég heyri þetta í samtölum við kennara. Ég heyri þetta í samtölum við heilbrigðisstarfsfólk. Ég heyri þetta í samtölum við lögreglumenn. Miklir fólksflutningar hafa verið til landsins í þágu atvinnulífsins og mikill vöxtur í ferðaþjónustu. Og já, fólk á flótta hefur flust hingað til lands. Landamærin eru í dag orðin pólitískt átakaefni. Opnum landamærum er mótmælt af einum hópi, lokuðum landamærum er mótmælt af öðrum. Þetta eru jaðrarnir í umræðunni. Það sem máli skiptir er að stjórnvöld hafi stjórn á aðstæðum. Við ætlum að vinna eftir ábyrgri stefnu í stað þess að festast í umræðum um orð, orðum eins og aðlögun eða inngildingu, því að kjarni málsins er þessi: Við getum ekki tekið við öllum, en við eigum að taka vel og fallega á móti því fólki sem hér sest að. Mikilvægast af öllu er að við eigum að veita börnum af erlendum uppruna jöfn tækifæri á við íslensk börn. Aðgangur að tungumálinu er eitt mikilvægasta verkfærið í þeim efnum. En höfum eitt alveg skýrt; það er ekki hlutverk íslenskra stjórnvalda að inngilda menn sem hingað koma gagngert til að fremja glæpi. Við eigum að brottvísa þeim og hindra komu þeirra til landsins. Nýlega sneri lögreglan á Suðurnesjum háttsettum Bandidos-mönnum við á landamærunum. Og þetta gerir lögreglan reyndar reglulega án þess að það rati í fjölmiðla. Þetta er afrakstur alþjóðlegs samstarfs og greininga á farþegalistum.
Kæru landsmenn. Viðreisn hefur verið treyst fyrir mikilvægum málaflokkum í þessari ríkisstjórn. Vinnubrögðin í þessari ríkisstjórn eru önnur en áður var. Samstaðan er meiri. Og þannig erum við að ná árangri. Áherslur Viðreisnar birtast í öruggum höndum fjármálaráðherra. Loksins er kominn fjármálaráðherra sem veit hvað hann syngur. Sala á banka gat, ótrúlegt en satt, orðið án þess að allt samfélagið færi á hliðina. Það þurfti ekki sakamálarannsókn í kjölfarið. Vextir og verðbólga fara lækkandi, hagvöxtur mælist meiri. Fólkið í landinu og fyrirtækin finna muninn. Og jú, stjórnarandstaðan er hér spariklædd og í fýlu.
Viðreisn þorir að standa með þjóðinni í sjávarútvegsmálum. Og auðvitað finnur þjóðin líka að þegar Sjálfstæðisflokkurinn talar um stétt með stétt þá er flokkurinn auðvitað í reynd að tala um stéttirnar tvær í þeirra heimi, auðstétt og kvótastétt.
Áherslur Viðreisnar sjást víðar. Sumarlokanir meðferðarúrræða eru liðin tíð og þar birtist áhersla okkar á andlega líðan fólksins í landinu. Fram undan eru sömuleiðis stórfelldar vegabætur á landsbyggðinni. Áherslur Viðreisnar sjást líka í utanríkismálum þar sem skilningur á mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu kristallast í mikilvægi Evrópusamvinnu. Við tölum máli mannréttinda og jafnréttis og alþjóðalaga. Á meðan spilar klofinn Sjálfstæðisflokkur og Miðflokksmenn furðulegan leik hér á Alþingi. Þau eru spariklædd hér í kvöld en takturinn og tónninn er sá sami og hann hefur verið á þessu ári. Þau tefja bara til að skemma. Það er eina markmiðið. Klofin stjórnarandstaða með enga sýn. Staðan á þinginu er kannski í grunninn þessi: Sterk stjórn, klofin andstaða.
Kæru landsmenn. Viðreisn vinnur í þágu þjóðarinnar. Við finnum stuðninginn, við finnum meðbyrinn. Þjóðin kaus breytingar og loksins fær þjóðin góðar breytingar.