Almennar stjórnmálaumræður.
Kæri þingheimur. Kæra þjóð. Fyrir stuttu síðan rakst ég af tilviljun á merkilegan fyrirlestur um áhrif valds á hegðun og samskipti. Þar fjallaði prófessor við Berkeley-háskóla í Bandaríkjunum um rannsókn sína sem nýtti Matador-spilið til að skoða þessi tengsl, en spilið, eins og kannski flestir kannast við, gengur út á það að sá sem safnar mestum auð í gegnum fasteignaviðskipti eða fjárfestingar, hann vinnur. Hinir verða gjaldþrota. Í Matador-tilrauninni fékk helmingur þátttakenda umtalsvert forskot. Þeir fengu tvisvar sinnum meiri pening. Þeir fengu tvo teninga. Þeir fengu líka tvöfaldan vinning þegar þeir lentu á góðum reit. Niðurstaðan var mjög áhugaverð. Þeir sem fengu slíkt forskot sýndu fljótt valdameiri hegðun og minni samkennd í spilinu. Þegar þeir voru svo spurðir út í árangurinn voru þeir fljótir að nefna að árangurinn væri þeim sjálfum að þakka en tengdist ekkert forskotinu sem þeir fengu.
Niðurstöðurnar eru í takt við fleiri rannsóknir sem benda til þess að völd geti aukið sjálfhverfu. Það er áhyggjuefni því að þegar slíkur hroki nær yfirhöndinni þá töpum við hæfninni til að hlusta, til hlusta á ólík sjónarmið, og það er þá sem djúp gjá myndast. Við upplifum slíka gjá oft í þessum þingsal og mig langar til að nefna þrjú dæmi um áskoranir þar sem við verðum að hlusta betur, öll hér inni, óháð því hver fer með valdið.
Fyrsta dæmið er eftirfarandi: Í auðlindamálum höfum við skapað orkumarkað sem minnir óþægilega á eftirlitslausan fjármálamarkaðinn fyrir hrun. Raforkuverð hefur aldrei hækkað jafn hratt. Skortur á framtíðarsýn hefur leitt af sér að tugir erlendra vindorkuverkefna eru í bígerð og valdið er hjá þeim sem vilja margar virkjanir hratt á meðan rödd náttúruverndarsinna þagna. Við eigum að framleiða meiri orku en við megum ekki líta á ráðstöfun takmarkaðra auðlinda, lands og víðerna, sömu augum og kaup á götum eða húsum í Matador-spilinu.
Lítum á annað dæmi: Veiðigjöldin eru afar mikilvægt úrlausnarefni en það er óásættanlegt að stór málefni, líkt og ofbeldi sem við höfum séð í grunnskólum landsins, fái ekki meiri umfjöllun hér á þingi. Við þurfum kjark til að ræða um orsakir eins og ójöfnuð, árekstra við innflytjendur og þverrandi andlega líðan. Sættum okkur ekki við hnífaburð. Bregðumst við faraldri ofbeldis af sömu festu og almannavarnir gera þegar náttúruvá steðjar að. Þá koma allir saman. Það er skýrt aðgerðaplan og það er unnið þangað til hættan er yfirstaðin. Við þurfum sömu festu gegn þeirri vá í samfélagi okkar sem ofbeldi er.
Þriðja dæmið er húsnæðismarkaðurinn. Við þurfum að passa að forgjöf og heppni ráði því ekki hvort þú eigir þak yfir höfuðið og vextir verða að lækka. Uppbygging íbúðarhúsnæðis á ekki bara að vera á forsendum þeirra ríku. Áður var hagkvæmara húsnæði byggt svo að fleiri kæmust að. Húsnæðismál eru lífsspursmál og húsnæðismarkaðurinn má ekki vera leikur í anda Matador-spilsins.
Kæru landsmenn. Þegar íslenska þjóðin varð sjálfstæð þá áttum við lítið annað en landið sjálft og fullveldið. Það var hins vegar með samstöðunni sem okkur tókst að byggja upp tengsl við önnur ríki og með framsýni byggðum við upp sterka innviði, eins og Héraðsskólinn á Laugarvatni og hitaveitan eru gott dæmi um. Þetta voru verkefni sem höfðu samfélagslegt gildi langt umfram fjárhagslegan ávinning þess tíma. Það er þess vegna sem við erum rík þjóð í dag. Við erum með einstaklega dýrmæt spil á hendi og okkur eru sannarlega allir vegir færir. Förum því úr sundrung í samvinnu. Því meira sem við sýnum auðmýkt, samvinnuvilja og hlustum á ólík sjónarmið, ekki síst hér í þessum þingsal, þeim mun betur mun okkur farnast. Og það á við óháð því hver fer með valdið.
Mig langar til að enda á orðum ömmu minnar heitinnar, sem bar hið fallega og táknræna nafn Friðgerður, sem merkir vörn friðarins. Hún sagði eitt sinn við mig: „Það verður enginn betri manneskja af því að hafa það betra.“
Það sem skilgreinir okkur eru verkin og heilindin sem búa þeim að baki og þar er samvinna okkar sterkasta afl. — Góðar stundir.