156. löggjafarþing — 58. fundur,  11. júní 2025.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:58]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Ríkisstjórn sundurlyndis sprakk með látum síðastliðið haust og það verður að segjast eins og er að farið hefur fé betra. Úrslit síðustu kosninga voru skýr. Sjálfstæðismenn og Framsóknarflokkurinn fengu lélegustu kosningu í sögu sinni enda skildu flokkarnir eftir sig innviði í molum, óstjórn og ríkisfjármál í óefnum. Hins vegar fengu Flokkur fólksins, Samfylkingin og Viðreisn skýrt umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar, ríkisstjórn sem sýnt hefur það á stuttum starfstíma að vera ráðdeildarsöm verkstjórn.

Þjóðin kallaði eftir breytingum þar sem almannahagsmunir yrðu látnir ráða för í stað þröngra sérhagsmuna og þjóðin er að fá breytingarnar. Allt frá því að núverandi ríkisstjórn var mynduð fyrir tæpum sex mánuðum hefur hún látið verkin tala. Fjöldi þjóðþrifamála liggur nú fyrir vorþinginu. Allt mál sem tryggja hag almennings og snúa að því að bæta hag þeirra sem lakast standa í þjóðfélaginu, innleiða réttlæti í nýtingu auðlinda og standa vörð um frjálsa samkeppni á flestum sviðum.

Áratugum saman hafa stjórnvöld misboðið réttlætiskennd þjóðarinnar þegar kemur að sjávarútveginum. Þar stóðu gömlu stjórnarflokkarnir þétt saman í vörnum sínum fyrir sérhagsmunum auðmanna. Veiðigjaldafrumvarpið er einfalt. Í stað þess að miða við verðmat í innri viðskiptum sjávarútvegsrisa þá miða útreikningar gjaldsins við raunvirði hráefnis á mörkuðum. Eftir leiðréttinguna munu núverandi kvótahafar engu að síður standa uppi með bróðurpartinn af hagnaðinum af nýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar. Það segir í rauninni allt sem segja þarf um veiðigjaldið að það verður ekki nema um 50 kr. á hvert kíló af þorski á meðan útgerðarfyrirtækin sjálf geta leigt öðrum sama kvóta áfram á um 500 kr. Með öðrum orðum þá greiða þau innan við tíunda hluta þess verðs sem þau leigja öðrum sömu veiðiheimildir á.

Kæru landsmenn. Það er merkilegt að hlusta á þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem mæra markaðslögmálin á tyllidögum, fara hér hamförum og tala um árásir þegar veiðigjöldin eiga að taka mið af markaðslögmálum, að útgerðin ráði því sem sagt ekki sjálf við hvaða verð er miðað heldur að verðið ráðist á frjálsum markaði. Það er árás. En það felast mikil tækifæri í sjávarútvegi. Það felast tækifæri í endurskoðun á fiskveiðiráðgjöfinni með aukna nýtingu að leiðarljósi, veita þannig brothættum byggðum á borð við Grímsey, Raufarhöfn, Bakkafjörð o.fl. tækifæri á að nýta nálæg fiskimið með vistvænum veiðarfærum.

Á sviði landbúnaðar ætlar ríkisstjórnin að tryggja áframhaldandi samkeppni á kjötvörumarkaði með hag bænda og neytenda í huga. Fyrsta verk verður að nema úr gildi ólög fyrri stjórnar sem eiga ekkert skylt við Jónas frá Hriflu heldur það að verið var að koma á einokun fyrir kaupahéðna, eins og Jónas myndi orða það sjálfur.

Virðulegi forseti. Það sem af er þinginu í vetur höfum við horft upp á þingmenn stjórnarandstöðunnar berjast allir sem einn um hylli sérhagsmunaaflanna. Þeir keppast við að yfirbjóða hver annan og baráttan er hörð og jöfn. Um stund hélt ég að Miðflokkurinn væri með forystu en í kvöld var ekki að heyra annað en að Sjálfstæðisflokkurinn væri hér kominn í mikla sókn því að hann taldi að það væri ógn ef við myndum leiðrétta kjör ellilífeyrisþega.

Ólíkt fyrri ríkisstjórn þá ríkir mikil sátt um þá tugi mála sem stjórnarflokkarnir hafa lagt fram á yfirstandandi þingi, hvort sem horft er til breytinga á lögum um útlendinga, landamærin, málefni elli- og örorkulífeyrisþega eða auðlindir landsins. Þá standa þingmenn stjórnarflokkanna saman sem einn maður. Eina spurningin er hvort stjórnarandstaðan virði rétt mikils meiri hluta þjóðarinnar og stundi hér ekki málþóf úr hófi. Það er spurningin.

Góðir Íslendingar. Það er bjart fram undan. Við byggjum saman bæi og sveitir landsins þar sem innviðir verða treystir og ungir sem aldnir fá skjól. — Góðar stundir.