Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 240, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þóroddssyni, á þskj. 277, um fyrirkomulag og umfang upplýsingatækni hjá ríkinu, frá Degi B. Eggertssyni, á þskj. 396, um túlkaþjónustu á sviði fræðslumála, frá Snorra Mássyni, og á þskj. 463, um greiðslur til frjálsra félagasamtaka, frá Þorsteini B Sæmundssyni.
Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 498, um rannsóknar- og gæsluvarðhaldsúrskurði, frá Vilhjálmi Árnasyni.
Að lokum hefur borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 457, um greiðslur til frjálsra félagasamtaka, frá Þorsteini B Sæmundssyni.