Störf þingsins.
Frú forseti. Ég er hér kominn til að leita aðstoðar virðulegs forseta varðandi mál sem er núna til meðferðar í hv. atvinnuveganefnd og varðar breytingu á veiðigjöldum. Þar hefur því verið hafnað að framkvæmt verði fjárhagslegt áhrifamat á sveitarfélög með þeim rökum, sem hafa svo sem komið fram í umræðunni hér í þingsal, að málið snerti sveitarfélög ekki með beinum hætti. Nú liggur fyrir þinginu frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum sem varðar mat á fjárhagslegum áhrifum, ein grein sem fjallar akkúrat um þetta, að það sé uppálagt ráðherrum að framkvæma áhrifamat, eins og segir hérna, með leyfi forseta:
„Ef fyrirsjáanlegt er að stjórnarfrumvarp, stjórnvaldsfyrirmæli eða aðrar stefnumarkandi ákvarðanir af hálfu ríkisins muni hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög skal viðkomandi ráðherra tryggja að fram fari sérstakt mat á þeim áhrifum.“
Harmakvein sveitarfélaga sem komið hafa fram undir vinnu hv. atvinnuveganefndar eru með þeim hætti að það eru auðvitað einhver galskapur að nýta ekki þann tíma sem við þó höfum til að uppáleggja ráðuneytinu að vinna þessa vinnu. Nefndaráliti var dreift í gær vegna þessa þingmáls sem hér liggur fyrir um að lögfesta þetta mat á fjárhagslegum áhrifum þar sem eingöngu er gerð tillaga að breytingum sem eru tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið. Það er sem sagt skoðun þingsins, meiri hluta nefndarinnar í þessu tilviki sem fjallar um þetta, hitt málið, mat á fjárhagslegum áhrifum, að þetta eigi fortakslaust að framkvæma. Svo finnum við okkur á þeim stað að hér er risamál sem hátt á þriðja tug sveitarfélaga hefur sett fram athugasemdir við, óskað eftir áhrifamati og þar fram eftir götunum, og því er hafnað. Þess vegna vil ég biðja virðulegan forseta um að hlutast til um það að tíminn sem við þó höfum hér til að vinna þetta mál þannig að það skáni verði m.a. nýttur til þess að vinna áhrifamat á áhrifum veiðigjaldamálsins á sveitarfélög.