156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég hlustaði á eldhúsdagsumræðurnar hér í gærkvöldi eins og margir aðrir og og vakti sérstaka athygli mína ræða hæstv. dómsmálaráðherra. Miðflokkurinn hefur árum saman eða lengur talað fyrir því að Íslendingar þyrftu að bregðast við í tíma í málefnum útlendinga og landamæra svo hér skapaðist ekki ástand líkt því sem við höfum verið að sjá í okkar nágrannalöndum. Það er því víst gleðiefni að hæstv. ráðherra hafi hitt samstarfsfólk sitt á hinum Norðurlöndunum og það hafi bent ráðherranum á það sem Miðflokkurinn hefur leitast lengi við að benda á. Ég ætla að vitna aðeins í ræðu hæstv. dómsmálaráðherra, með leyfi forseta:

„Ég sat á dögunum fund með dómsmálaráðherrum Norðurlandanna og við ræddum um skipulagða brotastarfsemi og aðgerðir gegn ofbeldi. Skipulögð glæpastarfsemi hefur náð að festa rætur á Íslandi og á Norðurlöndunum sjáum við núna að skipulagðir glæpahópar eru farnir að nota ungmenni til að fremja afbrot. Gengjastríð eru orðin að veruleika og ráðamenn hafa miklar áhyggjur af stöðunni. Ég fékk brýningu frá norrænum kollegum mínum sem sögðu: Gerið eitthvað núna, ekki bíða. Það verða dýrkeypt mistök.“

Frú forseti. Þessu ber auðvitað að fagna. Öryggi almennings hér á landi á vitaskuld að vera það sem ráðamenn eiga að hafa efst í huga og gera allt til að stuðla að auknu öryggi meðal landsmanna. Þar duga engin vettlingatök, frú forseti. Hæstv. ráðherra þarf einnig að upplýsa hvaða ráðgjafar hún naut nákvæmlega á þessum fundi og til hvaða fleiri ráðstafana kollegar hennar hvöttu hana til að gripið yrði til hér á Íslandi til að forða því að ástandið yrði svipað hér og á öðrum Norðurlöndum. Danir með forsætisráðherra sinn, Mette Frederiksen, í broddi fylkingar hafa lengi haft áhyggjur af svokölluðum hliðarsamfélögum, sem við köllum kannski gettó stundum, í Danmörku og hafa gert ráðstafanir og áætlanir um afmá þau með öllu fyrir árið 2030. Hefur hæstv. ráðherra einhverjar ráðagerðir hvað þetta varðar hér á landi? Þá hefur forsætisráðherra (Forseti hringir.) Dana einnig lýst því yfir að það eigi ekki einn einasti hælisleitandi að sækja um hæli á danskri grundu. (Forseti hringir.) Hver eru áform hæstv. ráðherra í þessum efnum? Og svona má lengi spyrja.