156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Störf þingsins.

[13:44]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Allt of mörg börn verða fyrir ofbeldi á lífsleiðinni og stór hluti þeirra segir ekki frá ofbeldinu fyrr en á fullorðinsárum. Það fylgir því skömm að verða fyrir ofbeldi, tilfinning sem er eðlileg en hvorki hjálpleg né réttlát. Skömmin er aldrei þeirra sem verða fyrir ofbeldinu heldur þeirra sem beita því. Ekkert barn á að upplifa ofbeldi. Það er okkar hlutverk að skapa samfélag sem leyfir því ekki að þrífast. Ofbeldi þrífst í þögninni, ofbeldi þrífst í skömminni og við eigum að taka utan um börnin okkar, eiga opið samtal og sýna hvert öðru kærleika.

Forseti. Í gær hófst vitundarvakning og söfnunarátak fyrir Bryndísarhlíð, miðstöð og geðheilbrigðisúrræði fyrir börn og ungmenni sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Það er mikilvægt að börn og fjölskyldur þeirra eigi stuðning vísan á öruggum stað, umvafin hlýju fagfólks sem kann til verka. Þögnin er besti vinur geranda og við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að rjúfa þögnina og búa til pláss, griðastaði svo hægt sé að segja frá í öruggu rými. Við verðum að horfast í augu við það mein sem ofbeldi er í okkar samfélagi. Ég ætla að leggja mitt af mörkum og vera riddari kærleikans til minningar um Bryndísi Klöru og öll börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi því að eitt sinn var ég sjálf þannig barn, alein í þögninni. Ég hefði sannarlega þurft á því að halda að vera gripin fyrr.