156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Mig langar hér rétt að koma inn á eitt þegar fer að styttast í þessum þingvetri, að hér í þinginu er mál sem fjallar um að stofnað verði rannsóknasetur um öryggis- og varnarmál, sem er raunverulega hluti af þjóðaröryggisstefnu þar sem kemur sérstaklega fram sá punktur að efla þekkingu á varnar- og öryggismálum, þannig að þetta fellur beint að þjóðaröryggisstefnunni. Við erum líka að ræða varnarstefnu þessa dagana, ákveðinn hópur, og þetta kemur líka inn á það. Það er gríðarlega mikilvægt að efla þekkingu um varnar- og öryggismál hér í þinginu og á Íslandi öllu. Því hvet ég svo sannarlega til þess að að utanríkismálanefnd klári málið í þeirri nefnd og sendi hérna inn í þingsal og við klárum þetta í síðari umræðu. Það er búið að mæla fyrir málinu, umsagnaraðilar hafa komið fyrir nefndina þannig að það er ekkert annað en að klára þetta mikilvæga mál.

Mig langar síðan rétt að koma inn á annað. Vegna þess að boðað var í vor að það kæmi samgönguáætlun þá vil ég ítreka það að varaflugvallargjaldið, sem var samþykkt hér í þinginu 1. nóvember 2023, sem fjallar um að byggja upp alþjóðaflugvelli landsins, Reykjavík, Akureyri og Egilsstaði, sé notað til framkvæmda við þá velli og að sá þjónustusamningur, það fjármagn sem hefur nú þegar komið um árabil til framkvæmda á flugvöllunum, haldi sér. Þetta er bara viðbót við þessa eflingu á flugöryggisþættinum sem er okkur Íslendingum náttúrlega gríðarlega mikilvægur eins og við þekkjum öll.

Síðan rétt í lokin vildi ég koma inn á það sem snýr að Reykjavíkurflugvelli, þ.e. skýrslubeiðni sem kom fram í þinginu 20. febrúar. Nú eru komnar 16 vikur frá því að beiðnin fór inn í gegnum þingið. Ráðherrar hafa 12 vikur til að koma til móts við erindið og það snýr raunverulega að stjórnsýslu málsins, Samgöngustofu, Reykjavíkurborg og þeim aðilum sem komu að því máli á sínum tíma við lokun austur/vesturbrautarinnar í vetur. Það er mikilvægt að sú skýrsla komi fljótt og vel hér fyrir þingið.