Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég held að þingmenn og þingheimur allur séu sammála um að eitt mesta óhappaverk í sögu húsnæðismála á Íslandi var niðurlagning verkamannabústaðakerfisins um síðustu aldamót. Það skildi eftir sig auðn fyrir tekjulægsta hópinn sem kom illilega í bakið á samfélaginu þegar virkilega á reyndi eftir hrun, en líka fyrir ótalmargt ungt fólk sem er að feta sig út á húsnæðismarkaðinn. Með lögum um almennar íbúðir og stofnframlög, sem sátt náðist um eftir gríðarlegt átak verkalýðshreyfingarinnar, Reykjavíkurborgar og annarra 2016, hafa byggst upp þúsundir íbúða fyrir efnaminna fólk um allt land, einkum í Reykjavík en ætti að vera meira og víðar. Reynslan sýnir að þessar íbúðir tryggja húsnæðisöryggi umfram það sem önnur leigufélög bjóða upp á og það mælist afgerandi. Það tryggir viðráðanlega leigu, allt að 40% mun miðað við almennan markað að mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Í raun ætti þetta ekki að koma á óvart vegna þess að þetta byggir á 100 ára gamalli reynslu frá Danmörku, kerfi sem hefur verið þar lengi við lýði og var loks innleitt hér.
En nú er sótt að þessari lausn sem hefur reynst þannig að stærstu félögin á þessu sviði eru með langa biðlista fólks sem þráir húsnæðisöryggi og húsnæði á viðráðanlegu verði. Ég veit og vona að Alþingi beri gæfu til að standa vörð um þetta, auka í uppbyggingu húsnæðis af þessu tagi, því að reynslan er óbrigðul og þó að allir þurfi ekki það sama á húsnæðismarkaði þá þurfa allir eitthvað. Og hvað er þetta eitthvað? Það er húsnæði, húsnæðisöryggi og viðráðanlegt verð.