156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

vinnubrögð við þinglok.

[14:14]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég hef nokkrum sinnum komið hingað upp í pontu og lýst yfir áhyggjum af því að nýir hv. þingmenn misskilji eitthvað örlítið störf sín hér í þessum þingsal og á þessu þingi og hef m.a. boðið fram aðstoð mína við eins konar nýliðafræðslu. En spurningin er hvort hæstv. ráðherrar, sem sannarlega eru líka þingmenn, þurfi líka á slíkri fræðslu halda og þá ekki síst varðandi þrískiptingu ríkisvaldsins. Það er gríðarlega mikilvægt að við vöndum til verka hér í þinginu en við gerum auðvitað kröfu til þess að hæstv. ráðherrar beri tilhlýðilega virðingu fyrir störfum okkar í þinginu og okkur þykir það ekki vera gert, hvorki í verki eða í orðum.