vinnubrögð við þinglok.
Virðulegur forseti. Það hlýtur að vera göfugt markmið að taka það að sér að verja lýðræðið hér í þessum ræðustól. Ég sé sjálfan mig ekki ná utan um slíkt verkefni eða geta framkvæmt það. Mér finnst einhvern veginn eins og það sé verið að snúa hlutunum á hvolf þegar staðan í þinginu er þannig að mál þeirra sem eru í meiri hluta komast bara ekkert áfram. Þá spyr maður: Hvers konar lýðræði er það þegar minni hlutinn ræður? Er það einhver ný tegund af lýðræði? Ég átta mig ekki alveg á því. Kvartanir um að mál þurfi að fara aftur til nefndar — alveg sjálfsagt að mál fari til nefndar en það verður þá að hleypa þeim til nefndar. Það þýðir þá ekki að standa hér og kvarta og kveina og hleypa svo ekki málunum til nefndar. Ég næ ekki utan um slíkan málflutning.