156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

vinnubrögð við þinglok.

[14:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég verð aðeins að bregðast við orðum hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, í ljósi þess að virðulegur forseti tekur auðvitað þessa umræðu til einhvers lags heildstæðs mats hvað það varðar að aðstoða okkur við að hnika málum áfram. Það er auðvitað þannig fyrir þá sem koma að nefndarstörfum nú um stundir, sérstaklega í þeim nefndum þar sem flókin mál eru til umfjöllunar, að það er ekki með neinum hætti — nú tala ég bara út frá minni reynslu til allnokkurra ára — hægt að líta þannig á að verið sé að taka að einhverju ráði undir sjónarmið stjórnarandstæðinga hingað til. Ég get tekið bara sem dæmi veiðigjaldamálið. Það er eins og rök gesta hrökkvi eins og vatn af gæs þegar komið er fyrir nefndina. Vafalaust verður einhverju af þessu landað í samtali þingflokksformanna en að halda því fram að þetta sé að gerast með þeim hætti sem hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson lýsir (Forseti hringir.) er ekki staðan í dag. Ég og fleiri höfum óskað liðsinnis virðulegs forseta í þeim efnum.