156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

vinnubrögð við þinglok.

[14:32]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Í tilefni þeirrar umræðu sem hér fer fram undir liðnum um fundarstjórn forseta þá telur forseti liggja fyrir að allir hv. þingmenn, vonandi, skilji hlutverk sitt og skynji. Og að sjálfsögðu er það þannig að það er í höndum löggjafarsamkomunnar að ræða þau frumvörp og þau þingmál sem hér eru lögð fram og taka þau til umfjöllunar í nefndum. Þær breytingar sem þar eru gerðar á málunum eru þó væntanlega gerðar í sameiningu í nefndinni, ellegar af meiri hluta nefndarinnar og þá er minni hlutinn með sínar tillögur ef því er þannig háttað. Við þekkjum þetta öll.

Forseti gæti haldið mjög langa ræðu um það hvernig best sé að haga þingstörfunum og hvernig þau eru hugsuð samkvæmt þingskapalögum en ég hygg að það þurfi ekki að minna hv. þingmenn á að það er þingheimur, það erum við sem hingað erum kjörin af kjósendum á Íslandi sem förum með löggjafarvaldið, ekki aðrir.