Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir andsvarið. Stutta útgáfan af svarinu er að með því frumvarpi sem hér liggur fyrir er verið að hringla í röð réttarheimilda og styrk þeirra, gildi, ef svo má segja. Það er verið að kippa úr sambandi þessum sjónarmiðum almenns eðlis sem varða það að yngri lög gangi framar eldri, að sérlög gangi framar almennum lögum og fleira slíkt. Það er verið að innleiða hér fortakslausa forgangsreglu sem er ekki bara til framtíðar heldur líka gagnvart þegar gildandi rétti.

Það má eiginlega segja að í mínu tilviki sé það það sem ég hef mestar áhyggjur af. Hvað varðar skýrleika gildandi réttar fyrir almenning og fyrirtæki þá er þetta, að ég held, til mikils ógagns að innleiða þessa forgangsreglu eins og hún er sett hér fram. Það er í rauninni bara forsenda réttarríkisins að við reynum að hafa gildandi rétt eins skýran og nokkur kostur er. Þetta er ekki til þess fallið og það að teppaleggja yfir gildandi rétt, eins og ég leyfi mér að orða það, með því sem þegar hefur verið gert í Brussel og því sem á eftir að gera þar — við ættum að ganga varlega um þær dyr.

Í rauninni skil ég ekki það upplegg sem hér er, mér virðist það vera niðurstaða sem er mótdræg hagsmunum okkar eins og þeir horfa við mér. Ég veit að það eru hv. þingmenn hér í salnum sem deila ekki þeirri skoðun minni, en niðurstaðan sem hér er römmuð inn er eins mótdræg íslenskum hagsmunum og hún getur orðið. Þá held ég að það sé miklu betra að láta á það reyna, bara fyrir dómstólum eða með hvaða hætti (Forseti hringir.) við komumst og áfram með þetta, því að dómstóllinn mun vafalaust aldrei segja: Þið (Forseti hringir.) verðið að gera þetta svona. Dómstóllinn mun segja: Þetta er ekki ásættanlegt eins og þetta er. Finnið leið. Og þá bara förum við yfir þá brú þegar við komum að henni.