Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Eins og maður kom aðeins inn á í fyrri ræðu, rétt eins og var t.d. reifað í þessum margnefndu vörnum Íslands, þá held ég að það séu raunverulega nokkrar leiðir sem hægt er að fara, það var talað þar um að það væri t.d. hægt að breyta þriðja ákvæðinu eitthvað til samræmis að einhverju leyti. Ég veit ekki hvort það sé æskileg leið, ég er ekki viss um það. Margir telja að það sé þá dómsmál í aðsigi, að dómur muni skera úr um þetta og hvernig það fer veit náttúrlega enginn. Það hafa náttúrlega verið markaðar þrjár sviðsmyndir í því, að það verði bara hlutlaust, að þetta sé allt saman með felldu eða þá að við séum jafnvel bara að innleiða þetta afskaplega vel og við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur eða þá að okkur verði gert að ganga lengra en sem nemur því ákvæði sem við erum að gera núna. Þar hef ég bent á að ef okkur er gert að ganga lengra þá væri sú sviðsmynd enn þá alveg við lýði þótt við myndum ganga svona langt eins og við erum að gera núna. Þannig að í versta falli, ef dómur er kveðinn upp um að við þurfum að ganga jafnlangt og við erum að gera núna með þessu ákvæði að þá væri það allur skaðinn, þannig að það þarf ekkert að hræðast það að takast á við slík mál með formlegum hætti. Maður sér það í þessum vörnum að við erum með mjög sannfærandi málstað gagnvart því að hafa málið óbreytt að mínu mati eða þá að fara einhverjar enn aðrar leiðir sem yrðu þá markaðar með hliðsjón af þeirri niðurstöðu sem kæmi út úr slíku dómsmáli.