Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir ræðuna og athyglisverðar vangaveltur. Í síðasta andsvari var farið yfir þær varnir sem við Íslendingar höfum haldið uppi gagnvart væntanlegu dómsmáli. Ég held að það sé rétt að lýsa því að það hafi orðið viðsnúningur í afstöðu frá því að þær varnir voru notaðar. Ef ég man rétt þá var því svarað með því að það hefði fallið hæstaréttardómur og það væri kannski skýringin á því af hverju það hefðu orðið sinnaskipti hjá stjórnvöldum. Ég man líka eftir því, hvort það var á síðasta kjörtímabili, að þáverandi hæstv. utanríkisráðherra Bjarni Benediktsson kom með skýrslu til þingsins og vildi fá umræðu um akkúrat þetta mál og ég ætla að segja að þingmenn höfðu bara nákvæmlega engan áhuga á því að ræða þessi mál. Þá áttaði maður sig á því að menn væru kannski í skotgröfum sem myndi ganga illa að komast upp úr. Í sjálfu sér hefur mér ekki fundist mikill blæbrigðamunur á þeim sjónarmiðum sem hafa verið uppi, hvort þetta feli í sér einhvers konar valdaframsal eða ekki, og þá spyr maður sig bara hvort við erum í þeirri stöðu — og ég vil kannski fá álit þingmannsins á því: Getum við ekki fundið lögspekinga á Íslandi sem geta einfaldlega bara skorið úr þessu máli, hvort við þurfum að breyta stjórnarskránni eða ekki? Mér finnst skrýtið ef við getum ekki leitt það mál í jörð.