Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir framsögu sína og góða yfirferð. Mig langar að velta því upp að þetta er mikil lagaflækja en að sama skapi er kannski hægt að horfa á þetta með einfaldari hætti. Ég veit að hv. þm. Sigríður Andersen er ekki sammála t.d. hæstaréttardómnum sem féll og í rauninni að hæstaréttardómurinn segi okkur að við þurfum að innleiða bókun 35, ef ég skildi hv. þingmann rétt. Mig langar að spyrja hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur hvort hv. þingmaður telji að við séum að bregðast við hæstaréttardómnum og í rauninni að innleiða bókun 35 núna út af honum og hvort ekki sé ekki betra að við Íslendingar sjáum um að innleiða bókunina á okkar forsendum frekar en að taka við einhverjum tilskipunum frá EFTA-dómstólnum.