Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég tek innilega undir með hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur að almennt í lagasetningu, þegar við setjum leikreglur í mannanna samfélagi á Íslandi, eigum við að hafa reglurnar einfaldar og eigum alls ekki að ganga lengra en þörf þykir. Ég tek undir það og á það ekki bara við í þessu máli, það á við í öllu. Við eigum alls ekki að ganga lengra en ESB- eða EES-ríkin gera. Það hefur náttúrlega verið til leiðinda að okkur hefur verið töm, embættismannakerfinu á Íslandi, þessi svokallaða gullhúðun eða blýhúðun, að ganga lengra og leggja þyngri álögur á borgarana en þörf þykir og jafnvel EES-samningurinn gerir kröfu um. Það er heimatilbúinn vandi sem í rauninni hefur ekkert að gera með EES-reglurnar. Þetta er slæmur ávani.
Mig langar í framhaldi af þessu að spyrja hv. þingmann um það að nú hefur maður séð skrifað sums staðar, sem auðvitað gerist í svona málum sem geta verið hitamál og eru það fyrir marga, og séð því fleygt fram að þetta geti jafnvel verið — ég segi ekki árás en geti verið atlaga að fullveldi Íslands. Mörg stór orð hafa verið látin falla í kringum þetta mál. Er hv. þingmaður sammála því orðfæri að hér sé um atlögu að fullveldi Íslands að ræða?