Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir prýðis spurningu. Þetta er nefnilega svolítið kjarni málsins, lögfræðingar í þessu máli eru að verða svolítið eins og hagfræðingar, þeir eru bara ekki sammála, þannig að auðvitað er þetta að því leyti ekki klippt og skorið. En mig langar að benda hv. þingmanni á það að í nýjasta hefti Tímarits lögfræðinga var einmitt farið yfir Hæstaréttardóminn sem féll og farið yfir að þetta sé kannski ekki jafn óljóst og talið var. Þarna erum við með færa lögfræðinga sem hv. þingmaður vitnar í, við erum líka með mjög færa lögfræðinga sem segja annað. Þess vegna segi ég: Leyfum stjórnarskránni að njóta vafans. Ef þetta er svona óljóst þá held ég að við ættum ekki að festa þetta fyrr en þetta er orðið eitthvað skýrara. Ef vilji er til að gera það, þá verður hæstv. ríkisstjórn að breyta stjórnarskránni. En ég er ekki viss um að þetta sé alveg eins alvarlegt og talið er því að ég held að við þurfum bara að laga þau lög sem eru ekki í lagi. Ef það eru einhver lög sem stangast á og eru ekki í lagi, þá skulum við bara laga þau. Það held ég að væri kannski fyrsta skrefið.
Varðandi Norðausturkjördæmi og Vestfirði sem ég minntist á áðan þá gæti það nefnilega komið til líka að þetta væri hugsanlega hagfellt fyrir Norðausturkjördæmi. Það að við stýrum okkar eigin auðlindum gæti nýst t.d. þegar kemur að matvælaöryggi og atvinnuuppbyggingu, en við getum ekki notað það þegar það koma einhverjar gerðir sem segja að við séum að mismuna allri Evrópu með því að nota orkuna okkar til að stuðla að okkar matvælaöryggi.