Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:04]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, það er alveg rétt hjá hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur að þetta er að verða svolítið eins og hagfræðin. Það eru nú fræg ummæli frá einum ágætum hagfræðingi sem fullyrti það í sjónvarpsfréttum að við yrðum eins og Kúba norðursins ef við myndum ekki samþykkja Icesave-samningana. Svo mörg voru þau orð. Sem betur fer gaf nú þjóðin lítið fyrir þau ráð, þess hagfræðings. Maður veltir því fyrir sér af því að hér eru greinilega lögspekingar að takast á um þetta mál: Telur hv. þingmaður að það væri jafnvel einnar messu virði að kalla saman lögþing, í rauninni þing, samkomu, ráðstefnu eða málþing margra lögfræðinga úr mismunandi áttum til að reyna að finna sameiginlega niðurstöðu um það hvernig við eigum að afgreiða þetta mál, þannig að við séum ekki í einu eða neinu að ganga gegn stjórnarskránni sem er náttúrlega okkar allra heilagasta?