Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Ég vil nú bara byrja á að segja að ég sagði kannski ekki heila setningu áðan, en þegar ég talaði um að við myndum ekki setja klásúlur í íslensk lög, þá meinti ég að við myndum ekki setja klásúlur um að EES-gerðir gengju ekki framar. Vissulega eru EES-gerðir íslensk lög en, eins og hv. þingmaður sagði, þá höfum við hér afsalað okkur ábyrgð mjög mikið þegar kemur að þessum gerðum. Ég er ekki búin að vera hér lengi en ég verð að segja að mér þykir það næstum því vera stundum, ég ætla bara að leyfa mér að segja það, sýndarmennska, umræðan sem þessar gerðir fá. Það er ítrekað einhver sem kemur og segir: Við getum eiginlega ekki breytt þessu, við hefðum átt að gera það á fyrri stigum, hagsmunagæslan var ekki næg á fyrri stigum. Maður segir: Eigum við þá ekki að gera eitthvað í því núna? Nei, þetta er komið of langt. Af hverju, ef við þorum ekki einu sinni að staldra við í svona stóru máli, ætti ég að trúa því að þingmenn, sérstaklega meiri hlutans, muni staldra við í minni málum þegar kemur upp sú staða að EES-gerðir gangi framar?