Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þeir sem óttast eða eru andstæðingar þessa, það snýr fyrst og fremst að því að þetta varðar fullveldi þjóðarinnar. Þetta snýr fyrst og fremst að því. Þegar almenningur sér, af því að við erum að tala um almenning — heilt yfir eru Íslendingar mjög stoltir af sínum uppruna og sinni þjóð. Langstærsta málið í þessu er það að hérna er verið að rölta af stað í ákveðinn Evrópuleiðangur. Ég held að þetta sé hluti af því.
Mig langar að beina því til hv. þingmanns hvort hún sé sammála mér í því að bókun 35 sé ákveðinn upptaktur að þeim Evrópuleiðangri sem núverandi ríkisstjórn er í.