Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir ræddi að þetta væru allt íslensk lög, EES-gerðir og íslensk lög. En mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins varðandi hagsmunagæsluna: Hefur hún ekki áhyggjur af því að hagsmunagæsla Íslands sé ekki nægjanleg? Vegna þess að þó að EES-gerðir verði að íslenskum lögum hér á Alþingi þá finnst mér liggja fyrir að við erum mjög treg að mótmæla einhverju í EES-gerðum. Hagsmunagæslan er ekki nægjanleg og það er yfirleitt sagt að við hefðum þurft að vera með hagsmunagæslu á fyrri stigum og þannig verður einhvern veginn umræðan á meðan við erum að fjalla um gerðirnar hér. Ef þessi bókun verður að lögum hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur, yrðum við þá alla vega ekki að bæta samhliða verulega í hagsmunagæsluna?