Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:14]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Fyrst hv. þingmaður heldur áfram í þeim myndlíkingum sem ég var í áðan, svona til að reyna að gera það skiljanlegra sem við erum að fjalla um hérna, þá hefur það alltaf verið þannig að sumir telja grasið grænna hinum megin við og hafa aldrei getað verið á bakkanum sínum í rólegheitum. Síðan verða menn yfirleitt fyrir vonbrigðum þegar komið er yfir á hinn bakkann því að það sést í hillingum að þar sé grænt en þegar raunveruleikinn tekur við er nú oft hlaupið til baka eða menn geta ekki snúið við þegar að því kemur. Þegar þú ert með vaðið fyrir neðan þig er það þannig að það er brot í ánni og þú ferð alltaf ofan við brotið og það heitir að hafa vaðið fyrir neðan sig.