Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:26]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Þetta er held ég akkúrat það sem er verið að tala um og þetta er eitt af því fáa sem ég tel mig hafa orðið nokkuð góðan skilning á, það var þessi útskýring: Til hvers er verið að gera þetta ef það er þannig að lögin hér taka alltaf yfir? Þess vegna er mér algerlega fyrirmunað að skilja til hvers þarf þá að fara í þessa vegferð. Ég bara botna ekkert í því. Þó að ég hafi lagt mig fram um að hlusta á rök og annað og góðar ræður í þessu máli þá hef ég ekki fengið þau rök sem segja mér að þessi vegferð sé æskileg, þ.e. að innleiða þessa bókun að fullu, vegna þess að ef það er þannig að íslensk lög eru alltaf yfir, til hvers er þá verið að standa í þessu? Það er stóra spurningin.