Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilegt svar. Ég held að við séum að skilja hvort annað. Ég held að við séum alla vega svipaðrar skoðunar í þessu máli. Mig langar líka í framhaldi af þessu, af því að við vorum að tala um að hafa vaðið fyrir neðan sig og standa á bakkanum og þurfa að komast yfir þessar vörður á tiltekinni vegferð sem hvorugu okkur hugnast, að nefna færibandið. Ég veit að hv. þingmaður skilur það orðatiltæki mjög vel, þetta færibandainnleiðingarsystem, afsakið forseti, frá Brussel. Ef þetta frumvarp nær fram að ganga, telur hv. þingmaður (Forseti hringir.) að þá getum við ekki tekið af færibandinu það sem Íslandi (Forseti hringir.) hugnast ekki að innleiða? Gerir það það ekki erfiðara? — Afsakið, forseti.