Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:45]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans andsvar. Það er mjög gott að fá umræðu um þetta enn þá frekar og ég myndi gjarnan vilja að menn töluðu kannski frekar um þetta atriði heldur en einhvern dóm sem skiptir ekki nokkru máli. Ég held að menn ættu bara að lesa þann dóm ef þeir ætla að fara að vitna í hann hér í púltinu. Hann segir ekki neitt. Hann lýsir bara ástandinu, hann lýsir bara því að svona er þetta. Þetta vissum við allan tímann og hefur alltaf verið vitað. Við höfum notað túlkunarregluna, ekki forgangsregluna. Og að láta sér detta í hug, frú forseti, eins og kom fram hérna í umræðunni í dag, að safna saman einhverjum lögspekingum á eitthvert málþing, er náttúrlega alveg fjarstæðukennt. Við erum að vinna með fjöldann allan af álitum í þinginu frá lögspekingum í nefndinni, blaðagreinum og hinum og þessum álitum sem við getum aflað okkur. Þingmönnum ber bara skylda til að kynna sér þessi sjónarmið, kynna sér þau en ekki hafa þennan yfirborðskennda hátt á sem kemur fram í máli sumra þingmanna þegar þeir vitna í þennan dóm sem segir ekki neitt og nota það sem rökstuðning fyrir því að vera með málinu. Þetta er bara hlægilegt.

Ég átti nú ekki við hv. þingmann í þessu sambandi en ég varð nú bara að blása þessu út úr mér af því að það er svo langt þangað til ég fæ að komast hér í ræðu aftur. En þetta er auðvitað bara mál sem Alþingi á að afgreiða og síðan eftir atvikum og svo í framtíðinni þegar við erum búin að afgreiða þetta, hvernig sem það fer, mér sýnist vera mikill meiri hluti með þessu máli — en svo koma tilvikin, hv. þingmaður. Þau koma seinna og af því að við erum með svona samfélag þá er þetta úrlausnarefni dómstóla seinna meir, þegar tilvikin koma, til að skera úr um það hvort þessi löggjöf sé að engu hafandi, sem ég tel vera niðurstöðuna. Hún sé að engu hafandi vegna þess að hún brjóti í bága við stjórnarskrá. En það gæti nú liðið einhver tími þangað til sú niðurstaða fengist.