Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:48]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mikið og öflugt svar. Nei, ég tók það ekki til mín þegar hann var að ávarpa aðra þingmenn, ég tók alveg eftir því að hann átti ekki við mig. Mig langar að beina næstu spurningu til hv. þingmanns sem snýr að því að ef við innleiðum þessa bókun 35 þá eiga að vera þarna lög sem taka yfir, lög sem eru þá hérna heima, þau ganga þá framar, aðrar tilskipanir skilst mér. Segjum sem svo að evrópskt stórfyrirtæki hafi mikinn áhuga á að komast í gott og hreint rafmagn. Telur hv. þingmaður þá hættu vera fyrir hendi, ef innleiðingin fer fram með bókun 35, að Evrópulöggjöfin taki þá yfir þá þingsályktun sem var samþykkt hér þegar orkupakki þrjú fór í gegnum þingið fyrir nokkrum árum síðan? Ég man að hv. þm. Karl Gauti Hjaltason tók nú hraustlega þátt í þeirri umræðu. Telur hv. þingmaður það vera raunhæfan möguleika, að það sé hægt, þ.e. að evrópsku lögin yfirtrompi þessa þingsályktun sem við fléttuðum við orkupakka þrjú á sínum tíma til þess að sannfæra okkur um að vera á græna takkanum? Við vorum efasemdarmenn margir þá og sumir náttúrlega alfarið á móti eins og hv. þingmaður var á þeim tíma. Er þessi hætta raunverulega fyrir hendi ef við innleiðum bókun 35?