Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:52]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir góða ræðu. Ég ætla að leyfa mér að endurtaka það hér að mér finnst þetta mál ansi flókið. Þess vegna held ég að mig langi kannski til að skræla aðeins utan af því hluti sem snúa að einhverju lögfræðiskrúði og reyna kannski að fá bara skýr svör frá þingmanninum um hvað þetta þýðir í raun. Ég velti fyrir mér; þegar maður les um mat á áhrifum þessa frumvarps þá stendur hér, með leyfi forseta:

„Frumvarpið felur í sér réttarbót fyrir einstaklinga og lögaðila sem geta með skýrari hætti en áður byggt rétt sinn á ákvæðum sem réttilega innleiða EES-reglur. Eins og áður hefur verið rakið verður í flestum tilvikum hægt að leysa úr ósamræmi lagaákvæða með almennum lögskýringarreglum og 3. gr. laga nr. 2/1993.“

Nú velti ég fyrir mér, af því að þingmaðurinn var að ræða um það þegar við innleiðum Evrópugerð og gerum það kannski ekki endilega með réttum hætti, er þingmaður þá ekki sammála mér um það að þegar við setjum lög og ætlum að breyta lögum, skoðum við þá ekki yfirleitt löggjöfina sem er til í kringum það mál? Þannig að ef fyrir er Evrópugerð, hún er til staðar og við ákveðum að setja íslensk lög, munum við ekki alltaf þurfa að taka þau lög sem í gildi eru og skoða þau í samhengi við nýju lögin sem við erum þá að semja og ákveðum þá mögulega að hafi forgang á Íslandi umfram það sem kemur fram í Evrópugerðinni, að það væri skoðað í hvert sinn og við munum aldrei komast hjá því? Það væri skrýtið að setja lög án þess að skoða í rauninni þann lagaramma sem fyrir er. Þannig ég velti fyrir mér með þessa árekstra, hvort þeir séu í raun jafn erfiðir og þingmaðurinn vill vera láta.