Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[17:55]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið. Já, auðvitað er lagaumhverfið skoðað þegar ný lög eru sett en það vill ekki betur til en svo að þetta er alltaf að gerast á endrum og eins að lög eru ósamrýmanleg. Þó að menn hafi ekki séð það áður og ekki fellt lög úr gildi o.s.frv. þá er þetta að gerast ansi oft að lög eru að rekast á hvert annars horn. Menn sjá þetta ekkert endilega fyrir, hv. þingmaður. Það er alveg skiljanlegt. Þetta er mikið efni og ekkert auðvelt í að komast. Þó að það sé kannski auðvelt að tala um það þá er þetta ekki auðvelt þannig að það er alveg skiljanlegt. Þess vegna er þetta svolítið einkennilegt ef við ætlum að fara að innleiða þetta og síðan koma grandalausir þingmenn hér í framtíðinni og ætla sér að breyta einhverju lagaumhverfi og gera það með góðum hug og svo kemur bara í ljós að það stenst engan veginn vegna þess að það er einhver Evrópulöggjöf sem hefur verið innleidd hér áður sem raunverulega — hvaða íslenska orð getum við notað yfir það að trompa? En ýtir sem sagt þessari nýju löggjöf bara út af borðinu. Það er auðvitað ekki góð staða fyrir þingmenn sem eru kjörnir á þing, Alþingi Íslendinga, og halda að þeir séu löggjafarvaldið, að standa svo frammi fyrir því að lög sem þeir eru nýbúnir að samþykkja eru að engu höfð hjá dómstólum vegna þess að þeir eru neyddir til að dæma eftir þessari forgangsreglu, sem ég efast nú um að þeir myndu gera því að ég hélt því fram (Forseti hringir.) hér í fyrra andsvari að þeir myndu ekki hafa þetta ákvæði að neinu vegna þess að það væri andstætt stjórnarskrá.