Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[18:34]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Íslensk lög, þau koma í staðinn. Innleiðingarstuðull Íslands á reglugerðum Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn er býsna góður. Það hafa ekki verið nein sérstök vandamál í gangi með þetta færiband nema ef vera kynni, að mati þess sem hér stendur, að bæði sé færibandið algerlega sjálfvirkt og snúist heldur hratt. Ef það er eitthvað, og nú get ég ekki ætlast til þess að fá svör við því enda er ég að svara seinna andsvari, þá vil ég benda á það sama í þessu samhengi og ég benti á í andsvari mínu áðan. Fyrst þarf að eyða öllum vafa gagnvart stjórnarskránni. Á meðan þar er vafi er algerlega borðleggjandi hvað eigi að njóta vafans. Það er stjórnarskráin.