Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svar sitt við andsvari mínu. Nú langar mig að fara pínulítið annað en ekki langt. Við vitum að bókun 35 er forsenda fyrir því að reglur EES séu virkar og innleiddar samræmt í öllum aðildarríkjunum. Ef Ísland segði sig frá bókuninni eða færi að neita í stórum stíl að innleiða reglur sem samningsaðilar telja mikilvægar væri það líklega brot á samningnum og gæti mögulega kallað fram einhverjar refsiaðgerðir eða jafnvel spurningu um áframhaldandi aðild. Er engin ábyrgð eða áhætta sem felst í því ef við lendum í því að sett sé spurningarmerki við veru okkar í EES vegna þess að við stöndum ekki við það sem við eigum að standa við samkvæmt samningnum? Er eitthvað sem setja má í staðinn fyrir þann aðgang að innri markaði sem samningurinn tryggir okkur eða hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því, ef allt fer á versta veg, að við endum einhvers staðar úti í skurði, ein og yfirgefin?