Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég hef engar áhyggjur umfram almennar áhyggjur sem maður alltaf hefur af alls kyns dellu sem veður uppi í þjóðfélaginu. Ég veit ekki hvar hv. þingmaður hefur verið ef hann heldur að það sé einhver nýlunda að Íslendingum sé hótað málshöfðunum fyrir EFTA-dómstólnum. Það gerist bara mjög reglulega. Ég veit ekki hvort ég geti sagt að það sé kannski mánaðarlega sem málum er vísað til EFTA-dómstólsins eða því a.m.k. hótað. EFTA-dómstóllinn tekur mjög reglulega fyrir samningsbrotamál, eins og það er kallað, gagnvart Íslandi vegna þess að Ísland innleiddi einhverjar reglugerðir eða tilskipanir Evrópusambandsins annaðhvort alls ekki eða ranglega. Þetta höfum við búið við í 30 ár og er ekkert vandamál. Það er ekkert vandamál að eitthvert mál fari fyrir dómstóla, til þess er dómstóllinn. Af því að við erum lýðræðisríki en ekki bananalýðveldi þá leysum við ágreining og þurfum iðulega að skjóta ágreiningsefnum til dómstóla. Það gerum við til EFTA-dómstólsins í þessu tilviki og er það ekkert vandamál.
Menn eru núna að tala um þessa forgangsreglu, að hún sé eitthvað nýtt, þ.e. að við þurfum að innleiða hana vegna þess að fólk sé að missa af réttindum sínum. Fólk missir af réttindum sem það mögulega á samkvæmt EES-samningnum vegna þess að Ísland hefur ekki innleitt tilteknar reglur. Það er það sem þarf að laga. Það lagast ekki með því að veita innleiddum reglum forgang vegna þess að þarf alltaf að innleiða þessar reglur. Það er vandinn. Hafi menn áhyggjur af því að menn séu að missa af réttindum er það vegna þess að menn hafa ekki innleitt eða innleitt ranglega. Það kann að vera ranglega, út af einhverjum mistökum, og þá er það bara lagað. Þetta er ekkert vandamál, alls ekkert vandamál. Ég hef engar áhyggjur af því vilji menn bera sérstaklega þessa röngu innleiðingu á bókun 35, sem hefur legið fyrir í 32 ár, fyrir EFTA-dómstólinn, að dómstóllinn kæmist að því 32 árum síðar að Ísland yrði bara að víkja úr EES-samstarfinu. (Forseti hringir.) Mér fyndist það alveg fráleit niðurstaða en það gæti svo sem verið, hvað veit ég. Þegar menn fara með mál fyrir dómstóla getur auðvitað hvað sem er gerst en ég hef ekki áhyggjur af því.