Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þegar hv. þingmaður spyr út í með hvaða hætti skuli bregðast við þegar kemur á daginn að réttindi séu ekki nægilega tryggð miðað við þau réttindi sem væri mögulegt að leiða af EES-samningnum, þá held ég að það þurfi fyrst að halda til haga að það eru ekki bara réttindi heldur skyldur sömuleiðis sem samningurinn leiðir fram. Við erum t.d. núna með til meðferðar hér í þinginu mál sem hverfist einmitt um að bregðast við, í þessu tilviki, þessum hæstaréttardómi um fæðingarorlof, mál 225, fæðingar- og foreldraorlof EES. Það er m.a. leið til að bregðast við þar sem við erum þeirrar skoðunar að réttindin eigi að vera með þeim hætti sem í þessu tilviki EES-samningurinn leiðir fram en ekki gildandi réttur eins og hann er, þá gerum við breytingar sem bregðast við því. Ég held að það sé leiðin til að bregðast við slíku en ekki teppaleggja yfir gildandi rétt með þeim hætti sem hér er lagt til með mögulega ýmiss konar ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Ég ræddi m.a. í annarri ræðu fyrr í dag fyrirvarann sem settur var inn við innleiðingu á orkupakka þrjú sem þingmenn þess tíma sögðu margir hverjir vera forsendu fyrir því að geta stutt við málið eins og það lá fyrir, þannig að það eru þessi atriði sem ég held að við verðum að fara með mjög ítarlegum hætti í gegnum í stað þess að setja þessa fortakslausu forgangsreglu sem í rauninni til fortíðar og framtíðar trompar sjónarmið eins og að yngri lög gangi framar eldri, sem lögmaðurinn þekkir auðvitað betur en ég, sérlög gagnvart almennum og þetta allt saman. Það er því nálgunin sem ég held að væri haganlegra að viðhafa heldur en það sem lagt er til hérna.