Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er einmitt atriði sem er í mínum huga algjört lykilatriði í umræðu um þetta mál eins og það liggur fyrir hérna, þ.e. að við glöggvum okkur á þessum afleitu áhrifum á gildandi rétt. Eitt er það sem tekur við frá þeim tíma að þetta verður samþykkt, verði það samþykkt, þar höfum við samkvæmt frumvarpinu eins og það liggur fyrir svigrúm til að setja inn fyrirvara, þó ég sé efins um að meiri hluti verði reglulega fyrir því hér í þingsal miðað við það hvernig núverandi ríkisstjórn er stemmd í þessum málum. En það sem væri að mínu mati mun alvarlegra væri þessi yfirfærsla regluverksins sem hefur verið innleidd á grundvelli sendingar frá Brussel yfir eldri löggjöf, þegar gildandi rétt. Þar mun skýrleiki laga minnka. Það verður erfiðara fyrir almenning og fyrirtæki að glöggva sig á gildandi rétti að ég tel. Nú þekki ég það ekki til hlítar en það hlýtur að koma til sérstakrar skoðunar einmitt áhrifin á gildandi rétt og það voru þó nokkuð margir þingmenn sem tilkynntu að þetta væri forsenda þess að þeir styddu við málið á sínum tíma, þar á meðal hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, að þessi fyrirvari væri um aðkomu Alþingis að ákvörðun um lagningu sæstrengs, kæmi hún einhvern tíma til. Ef þessi fyrirvari lognast út af, deyr, slokknar á honum með innleiðingu bókunar 35 eins og hér er lagt til þá er það auðvitað risamál. Það er eitthvað sem ég met sem svo að hv. utanríkismálanefnd verði að leiða í jörðu þannig að trúverðugt sé áður en málið kemur aftur inn til 3. umræðu, gerist það einhvern tímann.