Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[19:43]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans ræðu hér. Nú veit ég að hv. þingmaður er djúpvitur þegar kemur að því að eiga við Evrópusambandið á ýmsum sviðum og evrópska dómstóla sömuleiðis. Ég velti því fyrir mér í þessu samhengi ef við myndum spóla til baka og hugsa okkur að þessi bókun hefði verið innleidd hér á sínum tíma þegar ákveðið dómsmál var í gangi um ákveðna hluti — bara mat þingmannsins á því; munurinn á því að bókun 35 var ekki að fullu innleidd versus það ef hún hefði verið þegar þetta ágæta dómsmál var í gangi á sínum tíma, og hv. þingmaður veit um hvað dómsmál er talað í þessu samhengi.

Mig langar sömuleiðis að beina til hans spurningu varðandi það að við innleiðum hér bókun 35 sem snýr að lagningu á sæstreng til landsins. Miðað við þær upplýsingar og þann lestur sem maður hefur lagst í tengslum við þetta þá virðist það vera mat sérfræðinga á þessu sviði að þingsályktunin sem við samþykktum hér í tengslum við orkupakka þrjú haldi þá ekki ef bókun 35 er að fullu innleidd.