Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:08]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Í minni annarri ræðu í þessu mikla máli ætla ég aðeins að hlaupa yfir nokkra punkta, held ég, sem við snertum í þessari umræðu. Það hefur verið áhugavert að hlýða á umræðuna. Það eru alltaf að koma nýir og nýir fletir og hún hefur dýpkað töluvert eftir því sem farið er lengra því það er svo margt sem hangir með sem við getum tengt við hvaða áhrif það hefur varðandi þessa innleiðingu á bókun 35.

Ef við færum okkur í orkumálin og dveljum þar um stund, og ég hef svo sem átt í andsvörum við hv. þingmenn um þennan þátt, þá er íslenska orkan okkar undirstaða hagvaxtar, atvinnulífs og sjálfstæðis og síðan erum við náttúrlega með þetta orkuöryggi sem er mjög mikilvægt. Þetta er náttúrlega ein okkar allra mikilvægasta auðlind sem þjóðin á og við megum ekki gleyma því sömuleiðis að þessi græna orka er náttúrlega gríðarlega mikilvæg í baráttu okkar varðandi loftslagsvána og hún er íslensk, orkan okkar, hún er ekki evrópsk. Það er mitt mat, og ég tek undir mat margra sérfræðinga sem hafa ritað greinar um það hvaða áhrif það hefur á orkumarkaðinn okkar ef við undirgöngumst bókun 35, að þá færumst við væntanlega undir ACER. Þar af leiðandi er þessi stofnun Evrópusambandsins þá með ákveðið úrskurðarvald um það hvort við eigum að samþykkja t.d. að leggja sæstreng hingað til lands þannig að hún tekur yfir þá þingsályktun sem við létum fylgja með á sínum tíma þegar þriðji orkupakkinn fór í gegn og einn lykilþáttur í því að t.d. mitt atkvæði var á græna takkanum varðandi þriðja orkupakkann var að þessi þingsályktunartillaga fylgdi með. Miðað við mat margra sérfræðinga kemur þessi staða alveg örugglega upp og við höfum þá bara afskaplega lítið um það að segja. Og hvert erum við þá komin? Því að þá erum við farin að tapa töluvert miklu af okkar sjálfstæði þegar við ráðum ekki lengur yfir okkar orkuauðlindum. Og sennilega erum við sú þjóð sem er með hvað stærst hlutfall af endurnýtanlegri orku, grænni orku, sem er náttúrlega mikilvægt að verja. Það er áhugavert í þessu samhengi að velta þessu upp því að mér finnst þetta vera gríðarlega stór og mikilvægur punktur í þessari umræðu, að reyna að tengja þetta við hvaða áhrif það hefur að taka þessi skref. Ef við ætlum að halda uppteknum hætti eins og við höfum gert og ekki fylgt eftir, haft stækkunarglerið á öllum þeim innleiðingum sem við erum að fá hingað til okkar frá Evrópusambandinu — og við ættum frekar að horfa til þess sem Norðmenn hafa verið að gera hjá sér. Stjórnarskrá þeirra er á annan hátt en okkar og það hefur svo sem komið fram í umræðunni sömuleiðis að ef við myndum innleiða bókun 35 þá þyrftum við að breyta stjórnarskrá væntanlega á undan. Þetta kom fram í máli hv. þm. Sigríðar Á. Andersen.

Ég hef alltaf verið mjög efins varðandi það að að ganga skrefið til fulls varðandi bókun 35 og eftir því sem maður gengur lengra, tekur umræðuna enn frekar og les meira, þá verð ég alltaf ákveðnari og ákveðnari í minni afstöðu gegn þessari bókun. Ég segi það bara að mér líst orðið afskaplega illa á það að við ætlum að fara bara inn og hleypa þessu inn, laga hana til og gera hana eins og okkur er lagt til að hún eigi að vera. Við erum fullvalda ríki og við eigum að verja okkar hagsmuni með öllum ráðum sem við getum. Vissulega er EES-samningurinn okkur verulega mikilvægur en það getur ekki annað verið og grannþjóðir okkar og frændur Norðmenn hafa sýnt það í gegnum árin að þeir hafa mun öflugra eftirlit og eftirfylgni með þeim innleiðingum sem þeir taka til, og þeir eru að semja. Það er það sem við eigum að gera líka.

Virðulegi forseti. Við eigum ekki að taka þetta skref og sem þjóð megum við aldrei gleyma því að við erum lýðræðisríki og það er þjóðin sem þarf að eiga síðasta orðið hvað svona lagað varðar því að mér finnst þetta vera orðið það risavaxið, þessi umræða, og hún magnast alltaf frekar, verð ég að segja, eftir því sem maður les meira. Eins og einhver ágætur maður sagði er bókun 35 bara smábreyting á pappír en í raunveruleikanum hefur hún gríðarlegt vægi. Hún opnar ákveðna hurð sem verður erfitt að loka aftur og þegar sú hurð er opin þá verður leiðin greiðari fyrir fleiri ákvarðanir að fara sömu leið inn í íslenskt stjórnkerfi og án lýðræðislegrar ábyrgðar. Þetta eru stór orð. Ég verð bara að segja það, virðulegur forseti, að þetta er eins og þegar við opnum dyrnar og gleymum því, við teljum okkur búa í tjaldi og það er bara alltaf opið. Hitastigið verður þá ansi fljótt að breytast inni í húsinu, sérstaklega þegar kuldaboli er úti að blása. Þannig að ég segi bara það í þessu samhengi, virðulegi forseti, að við eigum að hafna þessu. Við eigum þá að reyna samningaleiðina hvað þetta varðar. Að taka þetta hér inn á þessum forsendum er ekki gæfuspor að mínu mati fyrir íslenska þjóð.

Það er áhugavert að velta því fyrir sér að stuðningsmenn þessa máls segja náttúrlega að þetta sé nauðsynlegt til að tryggja áframhaldandi samstarf innan Evrópusambandsins. En hversu langt erum við þá tilbúin til að ganga í þeirri samvinnu? Við verðum að halda uppi vörnum fyrir okkur sjálf. Það gerir enginn annar. Samningurinn er mikilvægur og hann er samningur um aðgang að innri markaði en hann er ekki samningur sem stýrir orkukerfinu hjá okkur. Þetta er ekki samningur heldur sem hefur aðgang að þeim stofnunum og stjórnsýslu landsins. Ég tel að við séum bara komin á ákveðið hættulegt stig og ég verð að segja það, virðulegur forseti, að ég fæ alltaf meira og meira óbragð í munninn. Nú eru fleiri orkupakkar á leiðinni, fjórði orkupakkinn bíður handan við hornið.

Ég segi bara það, virðulegur forseti, að hérna setjum við punktinn en í ljósi þess að ég á eftir að fara enn dýpra í umræðu í kvöld vil ég biðja hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.