Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Í þessu samhengi, hv. þingmaður, er í sjálfu sér vilji allt sem þarf. Hingað til höfum við ekki lagt okkur eftir því að sníða þá agnúa af sem æskilegir eru við innleiðingar á hinum ýmsu lögum og reglugerðum og tilskipunum sem við höfum tekið hérna til okkar. Ef svo er, eins og hefur komið fram í máli fylgismanna bókunar 35 — mér finnst þetta fyrst og fremst vera upptaktur að rólegri og þægilegri siglingu yfir hafið til Brussel. Ég held að það sé svona stóri þátturinn í því að menn vilji klára þessa bókun og séu ekkert að velta hinu fyrir sér.