Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Ég vil byrja á að taka undir með hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni og því sem hann sagði í ræðu sinni, að hann verði ákveðnari gegn bókun 35 eftir því sem umræðunni vindur fram. Það verð ég líka og er honum alveg sammála. Varðandi það að kannski sé ekki áhugi fyrir því að setja þessa varnagla inn þá held ég líka að vandamálið sé að við myndum ekki vita hvenær við ættum að setja þá inn. Tökum sem dæmi orkumálin, af því að við vorum að tala um þau: Ég hugsa að Þjóðverjum hefði ekki dottið í hug að setja inn einhverja varnagla, ef þeir hefðu verið í þeirri stöðu að geta sett inn varnagla, gagnvart orku sem þeir voru að fá frá Rússlandi. Þeir voru í góðri trú þegar þeir voru að semja um orku frá Rússlandi og við sjáum í hvaða stöðu þeir eru núna. Hún er ekki góð og þetta er staðan víða í Evrópu, það vantar orku, eins og hv. þingmaður kom inn á. Hefur hann ekki þeim mun meiri áhyggjur af þingsályktuninni?