Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef miklar áhyggjur af því að við höfum ekki vald yfir raforkuneti okkar þegar til þess kemur, og ef. Ég held að það sé ekki spurning því að ef þetta yrði innleitt með þessum hætti er það mat mjög margra sérfræðinga að stofnun eins og ACER tæki bara yfir og heimilaði lagningu sæstrengs hingað til lands. Þá erum við náttúrlega tengd raforkuneti Evrópusambandsins og það breytist nú ansi mikið hér á landi um leið og það gerist. Ég hef grun um að ansi mörgum komi til með að bregða allhraustlega þegar nýir orkureikningar fara að koma til, því að samkeppnin um orkuna verður gríðarleg. Hún er sáralítil í dag hér á landi, þó að hún sé mikil, miðað við það ef við værum tengd við Evrópu með sæstreng.