Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu. Hv. þingmaður kemur þarna inn á mjög mikilvægan þátt sem snýr að þessum samningum, þ.e. að við getum samið. Við bara höfum ekki gert það. Við höfum ekki látið á það reyna í gegnum tíðina. Erum við að fara að sjá það með því að samþykkja bókunina eins og hún lítur út? Miðað við þá sérfræðinga sem ég hef verið að vitna til og lesið mér til um eru þetta tveir pólar að takast á sitt á hvað þarna og ég er bara staddur þar, hv. þm. Ólafur Adolfsson, að ég samþykki ekki hluti nema hafa fulla vissu fyrir því að ég sjái til lands í því sem ég er að gera. Eins og þetta lítur út fyrir mér þá sé ég ekki til lands hvað það varðar og hef miklar áhyggjur af því að við séum að stíga ákveðið skref, opna ákveðna hurð sem við getum ekki lokað aftur.