Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur fyrir mjög góða spurningu. Ég skal vera alveg heiðarlegur í mínu svari til hv. þingmanns: Ég er ekki í færum til þess að meta það hvort hér sé um stjórnarskrárbrot að ræða eða ekki. Það eru fjölmargir sérfræðingar sem hafa sagt að svo sé ekki. Sömuleiðis eru margir sem vara við þessu. Aðrir leggja það til að við förum þá leið að breyta stjórnarskránni, að ef við ætlum að taka inn bókun 35 þá gerum við það í takt við það hvernig hún er í Noregi. Mitt heiðarlega svar til hv. þingmanns er því að ég get ekki svarað því beint með óyggjandi hætti hvort þetta sé brot á stjórnarskrá eða ekki. Það er akkúrat þetta sem málið snýst um. Þess vegna er maður ekki að taka skref nema maður sé viss um að skrefin séu rétt og það er ekki búið að sannfæra mig enn um það að bókun 35 sé rétta skrefið.