Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:39]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Við höldum áfram þar sem frá var horfið með þetta frumvarp sem er að innleiða forgangsrétt Evrópureglna umfram íslensk lög í íslenskum rétti. Það heitir ekkert öðruvísi og ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það að mínu mati. Ég ætlaði kannski aðeins að velta fyrir mér hvernig við getum brugðist við. Hvernig getum við brugðist við þessum kröfum frá ESA um að taka upp í íslensk lög svokallaða bókun 35? Það eru nokkrir möguleikar, kannski tveir. Annar er að halda áfram í óbreyttu formi og hinn að innleiða þetta í lög. Að innleiða þetta í lög, svo ég afgreiði það strax, er í raun einungis einn möguleiki. Sá möguleiki er að innleiða þetta í lög þannig að þetta fari í stjórnskipunarlög íslenska lýðveldisins, þ.e. stjórnarskrána, að þetta kalli hreinlega á stjórnarskrárbreytingu. Við skulum bara ræða það ef það er ætlunin. En svo er ekki, herra forseti. Hér er ætlunin að setja þetta í almenn lög. Ég tel það ekki nægilegt.

En svo getum við líka haldið áfram, sem er fyrri möguleikinn. Við getum t.d. einsett okkur það að innleiða reglugerðir og tilskipanir Evrópusambandsins og vanda okkur betur við innleiðinguna, þ.e. að það komi ekki til þess að uppi verði einhvers konar ágreiningur hvað þetta varðar, varðandi innleiðinguna. Við höfum auðvitað verið að gera það en við getum auðvitað gert betur. Það hafa komið upp nokkur mál eins og margir hafa nefnt hérna, fæðingarorlofsmálið er dæmi um það. Það var spurning um innleiðingu, aðferð við innleiðingu og texta, þannig að ég held að þetta sé hægt að laga.

Ef ESA ákveður að fara í mál, samningsbrotamál við Ísland, þá munum við taka til varna hvað það varðar þannig að ég held að sá kostur sé eini kosturinn sem er í boði núna, að halda áfram á óbreyttri ferð, innleiða betur, en ef samningsbrotamál verður höfðað að taka þá til varna. Varnirnar eru fjölmargar og ræðumenn hér hafa nefnt margar þeirra, t.d. sú stóra ástæða og sterka að þetta hafi verið athugasemdalaust í 35 ár, algerlega athugasemdalaust í 20 ár hvað varðar innleiðingu á bókun 35 með þeim hætti sem gert var 1993, þ.e. bara með túlkunarreglunni svokölluðu. Það eru mjög sterk rök. Að þetta fari í gegn íslensku stjórnarskránni eru auðvitað líka mjög sterk rök og ég hef nú leitt þau fram í mínum ræðum fyrr í dag og í síðustu viku, þ.e. hvernig ég tel þetta vera andstætt íslensku stjórnarskránni.

Svo er aftur með þetta frumvarp sem við horfum á núna og er kannski stór spurning og kannski stærsta spurningin: Er þessi innleiðing, ef þetta yrði að lögum, herra forseti, yfir höfuð nægjanleg? Ef maður les textann sem endar á orðunum „nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað“ — þetta orðalag, þessi hnýting aftan í textann, er að mínu mati auðvitað til að rýra mjög þessa innleiðingu ef maður horfir á þetta frá sjónarhóli Evrópusambandsins. Mér er til efs að við myndum losna við ákúrur og aðfinnslur frá ESA þrátt fyrir að þetta yrði að lögum. Ég get ekki ímyndað mér að þeir samþykki það að þessu sé hnýtt aftan við. Er búið að athuga það, herra forseti? Þetta er ein af þessum spurningum. Ég ætla að — já, tíminn er bara búinn, herra forseti. Þú verður að setja mig aftur á mælendaskrá, þetta er allt of stuttur ræðutími.