Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 59. fundur,  12. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[20:51]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir seinna andsvar. Það er alveg rétt að þetta ákvæði snertir auðvitað ekki allt regluverk Evrópusambandsins, snertir einungis þær gerðir sem hafa verið innleiddar og ætlunin er að innleiða hér og eru innleiddar með alls kyns aðferðum og slaufum eins og við höfum orðið vör við og kemur fram í þessum dómum sem nefndir eru í greinargerðinni. Það eru alls kyns aðferðir við þetta og mönnum eru mislagðar hendur. Það er það sem dómurinn fjallar í raun um, að þetta hafi bara ekki verið innleitt og þetta einfaldlega gildi ekki hér heldur gildi íslensk lög, þannig að þetta er ósköp einfalt. Það er alveg réttur skilningur, þetta gildir bara um innleiddar reglugerðir og þá er það þetta ákvæði sem við og löggjafarvaldið munum stöðva við, þ.e. lög sem eru nýsett á Alþingi. Þú gætir sem framtíðarþingmaður bara staðið frammi fyrir því að lögunum sem þú varst að samþykkja er bókstaflega hent út um gluggann af dómstólum nokkrum dögum seinna eða vikum. Þú verður trúlega ekki ánægður með það sem handhafi löggjafarvaldsins, trúlega ekki. En auðvitað er þetta innleiðing á ákveðinni lögskýringarreglu sem við höfum ekki séð áður og er allt öðruvísi en þær lögskýringarreglur sem við höfum búið við um árhundruð í vestrænum rétti. Þannig er nú það.

Svo spurði hv. þingmaður um innleiðingu annars staðar. Það er ekki líku saman að jafna, hv. þingmaður. Þótt ég sé enginn sérfræðingur í norskum rétti eða Evrópurétti yfir höfuð þá veit ég til þess að Norðmenn t.d. hafa ákvæði í stjórnarskrá sinni (Forseti hringir.) sem leyfir þeim að ganga miklu lengra en við gerum hér á Íslandi.