Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég tel rétt að rifja hérna upp ágæta skýrslu sem þáverandi utanríkisráðherra, Bjarni Benediktsson, lagði fyrir Alþingi á 154. löggjafarþingi fyrir rúmu ári síðan, í janúar 2024, að mig minnir, skýrslu vegna bókunar 35 um EES-samninginn. Þáverandi utanríkisráðherra lagði þessa skýrslu fram til þess að bjóða upp á umræðu um bókun 35. Þá þegar hafði verið lagt fram þetta frumvarp sem nú er hér til umræðu, lagt fram í fyrsta sinn nokkru áður, en það náði ekki fram að ganga. En utanríkisráðherra lagði fram þessa skýrslu og mér þykir rétt að nefna það af því að hér eru margir nýir á þingi og sjálf var ég ekki á þingi á síðasta kjörtímabili þannig að það er ástæða til að vekja athygli á henni. Hún er góð að því leyti að þar er farið yfir söguna og þar á meðal er greint frá ástæðum þess að bókun 35 var ekki innleidd með þeirri forgangsreglu sem samningsaðilarnir óskuðu eftir að yrði gert þegar Ísland gekk inn í EES-samstarfið.
Þetta er sem sagt skýrsla á 154. löggjafarþingi á þskj. 948. Þar er forsagan ágætlega rakin, þ.e. umræður sem urðu hér á Alþingi í aðdraganda setningu laganna um EES-samninginn, þessi ár sem á undan fóru og tekin voru undir viðræður við Evrópusambandið við gerð EES-samningsins. Þar kemur alveg skýrt fram að ESB óskaði eftir því að EES-réttinum yrði veittur forgangur í íslenskri löggjöf en Íslendingar komu því sjónarmiði skilmerkilega á framfæri við ESB að það gæti ekki verið í ljósi þeirrar tvíhyggju eða þeirrar tvíeðliskenningar sem íslenskt réttarfar byggir á og lýtur að skuldbindingargildi þjóðaréttar gagnvart íslenskri löggjöf. Það er þannig í íslensku réttarfari að jafnvel alþjóðlegar skuldbindingar, alveg sama hvaða nafni þær nefnast, hafa ekki bein réttaráhrif á Íslandi nema þær séu sérstaklega innleiddar í íslenska löggjöf. Meðal annars af þessum ástæðum og öðrum var talið útilokað að Ísland myndi semja um og gangast undir það að EES-rétturinn hefði sjálfkrafa forgang á önnur íslensk lög, ef þeim lýsti saman.
Þetta er sem sagt ágætlega rakið hér og það er líka ágætt að lesa og fá yfirlit yfir stefnuyfirlýsingar ríkisstjórna allt frá gildistöku EES-samningsins, mér sýnist flestra ríkisstjórna, a.m.k. margra, jú, flestra, en í þeim hefur verið ákvæði um EES-samninginn, þ.e. það hefur verið vikið að EES-samningnum þar. Þær eru í sjálfu sér allar á einn veg. Það er lögð áhersla á opin og frjáls alþjóðaviðskipti, norrænt samstarf og trausta framkvæmd EES-samningsins — hér er ég sérstaklega að vísa í stjórnarsáttmála síðustu ríkisstjórnar — og vikið er að því að hagsmuna Íslands verði gætt í hvívetna og að hagsmunum Íslands verði best borgið utan Evrópusambandsins. Ríkisstjórnin á síðasta kjörtímabili (Forseti hringir.) ætlaði að leggja áherslu á framkvæmd og þróun EES-samningsins þannig að hagsmunir og fullveldi Íslands í samstarfi og viðskiptum við önnur ríki væri tryggt.